Menntamál - 01.08.1962, Qupperneq 68
158
MENNTAMÁL
rifja ferðina upp skipulega, sýna myndir ef til eru og svara
spurningum kennara.
Að síðustu er svo lokið við heildarniðurstöður á hvern
þann hátt, sem henta þykir til þess að gera þær sem að-
gengilegastar og auðskildastar.
7 sjöunda lagi verður kennarinn eftir hverja slíka ferð
að gera sér grein fyrir, með hliðsjón af niðurstöðum,
hvaða þýðingu ferðin hefur haft. Kennslugildi hennar,
áhrifum hennar á vinnuafköst, vinnuáhuga og samvinnu-
hæfni, mat á verðmætum, bæði andlegum og efnalegum,
æskileg viðhorf, hegðun og þjálfun.
í þessum ráðleggingum er að nokkru leyti stuðzt við
upptalningu Ellsworth C. Dent í „The Audio-visual Hand-
book“, Society for Visual Education INC. Chicago, og C.
F. Hoban „The School Journey“ Educational Monographs,
Department of Public Instruction, Harrisburg, Pennsyl-
vania.
Þótt allt virðist það sjálfsagðir hlutir, sem hér er upp
talið, er flestum nauðsynlegt að hafa það svart á hvítu,
hvað gera skal, þegar ráðizt er í margbrotna námsferð.
Slík ferð getur mistekizt, ef eitt atriði gleymist eða er van-
rækt, þó að önnur hafi verið rækilega undirbúin.
En nú kann einhver að segja: Hvernig er hægt að kom-
ast yfir námsskrána með því að vera sýknt og heilagt með
bekkinn á þönum úr einum stað í annan eða sýnandi mynd-
ir í tíma og ótíma? Hvenær á að læra?
Já, þannig hafa margir spurt. En þeir eru líka margir,
sem ekki þurfa að spyrja. Þeir hafa sjálfir reynt, að sá tími,
sem fer til að auka raunverulegan skilning nemenda, vekja
áhuga þeirra og starfshvöt, vinnst margfaldlega aftur í
auknum afköstum og betri og nákvæmari vinnubrögðum.
Máli mínu til skýringar ætla ég að segja frá námsáætlun,
einni námsferð í sambandi við hana, tilhögun ferðarinnar
og niðurstöðum. Heildarverkefnið er: Þjóðfélagið, störf
þess og þarfir.