Menntamál - 01.08.1962, Blaðsíða 69
MENNTAMÁL
159
Landnám á liliani.
(Fálagsfrceð ira n n só knir.)
Við byrjuðum þetta
verkefni með því að teikna
kort af strandlengju með
undirlendi, upplendi og
fjalli. Uppi á heiðinni er
stöðuvatn, og úr því renn-
ur á til sjávar. Öllum nátt-
úrufyrirbærum eru gefin
nöfn, og þessi örnefni fara
eftir staðháttum, eins og
vera ber. Þegar lokið er við
kortið og nafngiftir sam-
þykktar, er gert upphleypt
líkan úr niðurrifnum dag-
blöðum, lími og sagi, á
plastundirlagi. Þegar búið er að mála líkanið, hefst landnám
bekkjarins á þessum stað. Fyrst er búinn til sveitabær og
límdur niður á kortið. Síðan hefst rannsókn á landbúnaði.
Fyrsta skólaferðalagið er því heimsókn á bóndabæ. Nem-
endur komast í snertingu við sveitalífið og skepnurnar, og
sú reynsla, sem þeir öðlast, verður grundvöllur margra
daga náms í félagsfræði, dýrafræði, grasafræði, almennri
landafræði, íslenzku, reikningi og teikningu.
Næst er byggt þorp niðri við víkina. Hver nemandi býr
til lítið hús og límir á líkanið, og rannsóknarefni bekkjar-
ins er heimilið. Nú er ekki farið í almenna námsferð, held-
ur fær lítill hópur, 3—4 nemendur, það verkefni að afla
fræðslu um vísitölufjölskylduna, tekjur hennar og út-
gjöld. Annar hópur athugar verkaskiptingu fjölskyldunn-
ar, sá þriðji hvernig hún eyðir tómstundum sínum, o. s. frv.
Allt þetta er athugað utan skólatíma og leiðsagnarlaust, en
unnið úr því í tíma, aðallega með myndum, frásögnum og
línuritum. Áhrifin má hæglega nota í reikningstíma, teikn-
ingu og til að skrifa félagsfræðilegar ritgerðir.
Fyrst búið er að byggja þorp, verður að útvega fólkinu