Menntamál - 01.08.1962, Síða 90
180
MENNTAMÁL
hvern nemanda og þessari upphæð ætti skólinn, kennarar
einstakra námsgreina og æfingakennararnir að mega verja
eftir frjálslegum reglum. Tilhögun æfingakennslunnar
má ekki hafa eins við alla skóla, því að aðstæður eru svo
ólíkar. Þess vegna þurfa kennarar skólans undir stjórn
rektors að bera ábyrgð á tilhögun æfingakennslunnar.
Hlutverk skólayfirvalda verður þá fólgið í því að meta þá
tilhögun, sem valin hefur verið, eftir meginkröfum um
gæði og magn þeirra hagnýtu æfinga, sem láta skal nem-
andanum í té.
Að því er varðar efni og áhöld skulu skólayfirvöld leggja
fram lista yfir lágmarkskröfur og samþykkta viðbót.
„Kennaramenntunarráð“ ber ábyrgð á eftirliti með búnaði
skólans í þessu efni og á að gera grein fyrir, á hvaða stigi
hann er. Hins vegar á skólinn sjálfur, kennararáð, undir
stjórn rektors, að sjá um kaup af þessu tagi, að lokinni
athugun á því, hver þörfin er.
Fjárhagsáætlun fyrir skóla með 200 nemendur mun
nema u. þ. b. kr. 1.000.000 og skiptist í höfuðatriðum
þannig:
TAFLA VI. Kostnaðaráætlun.
A. Laun lö kcnnara (lektorcr) 25.000 kr. á ári ....................... kr. 450.000.00
li. Áhöld, efni, bækur, hjálpargögn, námsferðalög ....................... — 150.000.00
C. Útgjöld vcgna æfingakcnnslu 200 ncmcnda á kr. 15.000.00 ............. — 300.000.00
I). Viðhald. — 10% af fjárhagsáætlun .................................... — 100.000.00
Kr. 1.000.000.00
Kennarar skólans, undir stjórn rektors og í samráði við
nemendur, leggja fram vel rökstuddar tillögur um notk-
un þess fjár, sem fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir. Fjár-
hæðin er miðuð við kr. 5000,00 á hvern nemanda á ári,
en yfirvöldin skulu í byrjun hvers skólaárs samþykkja
áætlanir um notkun hennar. Vel rökstuddar tillögur verða
því að vera tilbúnar um starfsskiptingu og vinnutilhögun