Menntamál - 01.08.1962, Page 118
208
MENNTAMAL
Ef tengsl þessara hugtaka við lonesome-einsam eru
athuguð, kemur eftirfarandi fylgni fram:
Meðal amerískra stúdenta:
Lonesomeness: hero = — 0,84
— love = — 0,77
— success = — 0,77
— masculine = — 0,73
Meðal þýzkra stúdenta:
Einsamkeit: Held = —0,03
— Liebe = — 0,05
— Erfolg = —0,04
— Mannlich = — 0,10
Munurinn er einsær. Meðal amerískra stúdenta þykir
fráleitt með öllu, að saman fari einmanaleiki og hetju-
skapur, ást, framgangur eða karlmennska. Þýzka viðhorf-
ið er að vísu á sömu sveif, en stigsmunur er geysimikill.
VI.
Þegar Friedrich Nietzsche talar um „asúrbláan ein-
manaleika“ eða Einar Benediktsson um „einmana hóps-
ins“, býr eflaust heil, sterk og djúp tilfinning að baki þeim
orðum. Líkurnar fyrir slíkum einmanaleika eru því meiri
sem kennendur hans eru gæddir ríkari tilfinningu og meira
hæfi til samkenndar.
Lesbók Morgunblaðsins gerir dæmið þó einfaldara en
staðreyndum hæfir, þegar hún fræðir okkur á því, hversu
erfitt ein mannssál eigi með að komast í samband við aðra,
og breytir engu um, þótt listamenn með yfirburðum skapi
góð verk á þeim forsendum.
Það er hending ein, að ég sæki einkunnarorð þessa grein-
arstúfs í Lesbók Morgunblaðsins, en ekki hvert dagblað eða
tímarit annað, sem fjallar um samfélagsleg eða mannleg
efni. Boðskapurinn um einsemina, einmanaleikann, er