Menntamál - 01.08.1962, Page 121
MENNTAMÁL
211
JÓN EMIL GUÐJÓNSSON:
Ríkisútgáfa námsbóka 25 ára.
Úr sliýrslu Jóns Emils Guðjónssonar framkvtemdastjóra.
Fyrsti fundur námsbókancfnd-
ar — eins og stjórn útgáfunnar
nefnist — var haldinn 1. apríl
1937. — Alþingi hafði samþykkt
lög um ríkisútgáfuna árið áður.
Frumvarp að þeim lögum var
flutt af þáverandi menntamála-
ráðherra, Haraldi Guðmunds-
syni, en einn aðalhvatamaður að
setningu laganna var Vilmundur
Jónsson fyrrverandi landlæknir.
í fyrstu námsbókanefndinni áttu
sæti: Vilmundur Jónsson for-
maður, Guðjón Guðjónsson og
Jónas Jónsson. Nú er námsbóka-
nefnd skipuð 5 mönnum og eru
þeir þessir: Sóra Jónas Gíslason
formaður, Gunnar Guðmunds-
son ritari, Helgi Elíasson, Helgi
borláksson og Pálmi Jósefsson. Varaformaður er Kristján J. Gunnars-
son, og hefur hann starfað reglulega í nefndinni allt frá árinu 1956.
Aðrir varamenn nefndarinnar nú eru Frímann Jónasson, Guðmundur
Þorláksson og Þórður Kristjánsson. — Menntamálaráðherra skipar
námsbókanefnd. Formaður er skipaður án tilnefningar. Fræðslu-
málastjóri er sjállkjörinn í nefndina. Tveir nefndarmenn eru skip-
aðir samkvæmt tillögu Sambands ísl. barnakennara og einn sam-
kvæmt tillögu Landssambands framhaldsskólakennara. Nefndin er
því að rneiri hluta skipuð samkvæmt tillögum kennarasamtakanna og
hefur svo verið frá byrjun. Formenn námsbókanefndar, aðrir en
þeir, sem þegar eru nefndir, hafa verið: Sigurður Thorlacius, Stein-
þór Guðmundsson og Jónas Jósteinsson.