Menntamál - 01.08.1962, Page 128
218
MENNTAMÁL
Arnað heilla.
Aðalbjörg Sigurðardóttir varð sjötíu og fimm
ára 10. jan. s. 1. Hún lauk kennaraprófi 1905.
Hún hcfur farið námsferðir til margra landa og
kynnt sór kennslumál og önnur menningar-
mál, flutt fjölda fyrirlestra um ýmisleg efni
og fengizt lengi við kennslu og prófdómara-
störf. Einnig hefur hún átt mikinn Jrátt i
fræðslulöggjöfinni, og halt forystu um barna-
verndarmál og málefni kvenna, og er þó fátt
eitt talið. Mikil atorka og fjölþætt áhuga-
mál Aðalbjargar eru alkunn, enda er henni
fátt mannlegt óviðkomandi.
Hinn 23. marz s. 1. varð Guðjón Guðjóns-
son forstöðumaður Kennslukvikmyndasafns rík-
isins sjfitugur. Guðjón lauk kennaraprófi 1916.
Framhaldsnám hefur hann stundað í mörgum
löndum austan hafs og vestan. Hann hefur
einnig kennt við marga skóla, m. a. barnaskól-
ann í Vestmannaeyjum og Reykjavík, einnig
við Kennaraskólann og Samvinnuskólann, ver-
ið skólastjóri við barnaskólann á Stokkseyri’ og
í Hafnarfirði 1930—1954. Hann var ritstjóri
Menntamála um skeið og hefur samið og Jjýtt
fjölda bóka, m. a. kennslubækur. Þá hefur hann verið mjög ötulf
forystumaður í félagsmálum kennarasamtakanna. Og enn er hann
ungur og vasklegur.
Guðmundur Björnsson, kennari á Akranesi,
varð sextugur 24. marz síðast liðinn. Guðmund-
ur lauk kennaraprófi 1934. Hann fór námsferð
til Norðurlanda 1951. Kennaraferil sinn hóf
hann í Ytri-Torfustaðahreppi og var um skeið
eftirlitskennari í Vestur-Húnavatnssýslu. Hann
heíur látið félagsmál til sín taka, bæði innan
kennarasamtakanna og ungmennafélaganna og
einnig sveitarstjórnarmál. Hann hefur jafnan
reynzt traustur fulltrúi stéttar sinnar.