Menntamál - 01.08.1962, Blaðsíða 133
MENNTAMÁL
223
Orðsending
Vegna væntanlegra kjarasamninga opinberra starfs-
manna í sumar hefur Bandalag starfsmanna ríkis og bæja
falið stjórnum S. í. B. og L. S. F. K. að framkvæma kjara-
könnun meðal allra kennara, sem eru fullgildir félagar í
S. I.B. og L. S. F. K.
Sams konar eyðublað og hér fylgir verður sent hverjum
einstaklingi innan vébanda B. S. R. B. til útfyllingar. Litið
verður á svörin sem algert trúnaðarmál til sambands-
stjórnar og samninganefndar B. S. R. B., þó áskilur B. S.
R. B. sér rétt til að vinna upp úr henni samanburð, ef þurfa
þykir, málstað launþega til hagsbóta, en ekki til að skerða
kjör þeirra eða hlunnindi.
Þess er vænzt, að kennarar bregðist skjótt og vel við
þessari málaleitan og útfylli alla reitina, sem við eiga, eftir
beztu vitund og getu og sendi eyðublöðin sem fyrst til
stjórna S. í. B. og L. S. F. K. pósthólf 616, Rvík, helzt fyrir
miðjan júní n.k. Stjórnir S. 1. B. og L. S. B. K.
Antoine de Saint-Expéry: IJTLI PRINSINN.
Þórarinn Björnsson skólameistari íslenzkaði. Bókaútgáfa Menn-
ingarsjóðs og Þjóðvinafélagsins, Reykjavík 1901. 83 bls.
Mér verður orðs vant, er ég minnist þessarar litlu bókar, og fæ þó
ekki orða bundizt. Hún er gerð af margháttuðum yfirburðum. Hún
er ævintýri skynjað og skráð af dæmalausuin næmleik á veruleikann
sjálfan, óbrigðulu mati á mennskum verðmætum, beiskjulausu lijarta,
tærri hugsun og djúpum skilningi á grátlegri misvizku manna.
Hún er ljúf og mild á ytra borði, en undir niðri átakamikill endur-
ómur þeirrar lífskenndar og lífsjátningar, sem ein er skilyrði ham-
ingju og harma.
I Hávamálum segir:
Auðigr þóttumk, es ek annan fann, maðr es manns gaman.
Hver sá, er þeim orðurn trúir, mun lesa þessa bók án vonsvika.
Og varla má minna vera en höfundi, snjöllum þýðanda og útgefanda
sé þakkað verkið. Br. J.