Menntamál - 01.08.1967, Page 61
MENNTAMÁL
155
ANDRI ÍSAKSSON:
Samfélagsfræði í skóla
Erindi, flutt á starfsfrceðslu- og félagsfrœðinámskeiði
i Kennaraskóla íslands, 6. september 1966.
Þess hefur verið farið
á leit, að ég flytji hér svo-
h'tið erindi um samfélags-
fræði í skóla. Liggur þá
iyrst fyrir að skýra lykilorð
viðfangsefnisins. Hvað er
samfélagsfræði?
Ég nota orðið samfélags-
fræði sem þýðingu erlenda
heitisins sociologi, á ensku
sociology, og miða hér í
spjalli mínu við víðustu
skýrgreiningu þess heitis.
Ég hef kosið að þýða socio-
logi með orðinu samfé-
lagsfræði fremur en t. d.
orðunum þjóðfélagsfræði
eða mannfélagsfræði, ein-
mitt vegna þess, að mér finnst samfélagsfræði ná víðari
merkingu. Þjóðfélag merkir í minni vitund aðeins samfélag
heillar þjóðar, og mannfélag samfélag allra manna, alls
mannkyns. Þjóðfélag og mannfélag hljóta samkvæmt þess-
um skilningi alltaf að vera samfélög, en á hinn bóginn eru
til samfélög, sem hvorki eru þjóðfélög né mannfélag. Við
hérna inni eru t. d. samfélag, en við getum naumast ætlazt