Æskan - 01.11.1970, Qupperneq 15
Sovézkur SIR K U S
Á fimmtíu árum hefur sovézki sirkusinn náð dæmalaus-
um árangri í sköpunarstarfi. Mörg þúsund manna her
ágætra kunnáttumanna gleður áhorfendur með litríkri og
jákvæðri list. Fyrsti sirkusskóli heims, sem starfar í Moskvu,
hefur alið upp frækinn flokk hæfra listamanna, sem hafa
borið hróður hans um mörg lönd.
Nú starfa í Sovétríkjunum 50 fjölleikahús, 14 umferða-
sirkusar, 13 dýrasirkusar og 50 hópar sem nefnast „Sirkus
á leiksviði". Meira en 45 milljónir manna sækja á hverju
ári sýningar allra þessara flokka. Listamenn sovézka sirk-
usins gista allar álfur á hverju ári, eða meira en 20 þjóð-
lönd, og er hvarvetna frábærlega vel tekið.
Stjórnin hefur ákveðið að til viðbótar skuli reisa í Sovét-
ríkjunum 60 ný fjölleikahús, búin nýtízku tækni. Af þeim
hafa þegar verið tekin í notkun fjölleikahúsin í Kazan, Bakú,
Donétsk cg Kújbisjéf. í Moskvu er verið að Ijúka við gríðar-
mikla sirkusbyggingu með þremur sviðum, sem skipta má
um; tekur hún 3000 manns í sæti.
ar litlu drengjanna, sem hafði leikið sér með þeim fyrr
um daginn. Þá hafði hann verið kátur og hlegið með hin-
um drengjunum, en nú var hann hér grátandi.
„Hafið þið séð svarta buddu? Ég týndi henni, og pabbi
sendi mig út í búð til að kaupa kókakóla og sígarettur,
hann var að koma af sjónum, og nú er hann svo æstur og
reiður, að ég þori ekki heim. Mamma er að vinna, og kaup-
maðurinn vill ekki lána mér þetta, af því að við skuldum
svo mikið, og nú veit ég ekki, hvað ég á að gera.“ Jonni
var farinn að hágráta, en Palli stóð ráðvilltur. Mamma var
sennilega hjá ömmu ennþá og pabbi ekki kominn heim.
Hann sá, að hann yrði að ráða fram úr þessum vanda sjálf-
ur. Maggi átti gott að vera svona lítill, nú gat hann skoðað
í búðarglugga á meðan þeir Jonni reyndu að ráða fram
úr vandanum. Palli hefði feginri viljað vera fjögurra ára
þessa stundina. Hann þekkti Jonna, hann var góður dreng-
ur, sem aldrei var að hrekkja eða slást, og þeir voru
jafngamlir. Hann þekkti líka föður Jonna, hann var á togara
og varð oftast alveg hræðilega vondur, þegar hann var
heima.
„Við kaupum þetta fyrir þig, við hljótum að hafa nóga
peninga fyrir gjöfinni fyrir því,“ sagði Palli, og þeir flýttu
sér inn í búðina.
„Fjórar flöskur og sígarettur," sagði Jonni, og Palli tíndi
peningana upp úr vasa sinum. Þegar hann var búinn að
borga, átti hann eftir nákvæmlega nfu krónur og Palli
vissi vel, að þeir mundi ekki geta keypt neina gjöf fyrir
svo lítið. Jonni þakkaði innilega fyrir og hljóp heimleiðis
léttur í lund yfir að vera laus úr þessum vanda, en Palli
stóð eftir, og nú var það hann, sem var gráti nær.
„Við skulum koma heim til mömrnu," sagði hann og
greip ( hönd Magga. Þegar þeir komu að útidyrunum,
gerðist tvennt i sama bili, mamma kom heim og Palli brast
í grát. Mamma settist með drenginn inni í hlýju eldhúsinu,
en Maggi starði undrandi á, hann var löngu hættur að
skilja, hvað um var að vera, en mundi nú aðeins eftir því,
að hann var svangur. Þegar mamma hafði gefið drengj-
unum brauð og mjólk, fékk hún að heyra alla söguna.
„Við ætluðum að kaupa jólagjöf handa ykkur pabba ...“
„Við sáum lyftikrana," skaut Maggi inn í.
Palli leit á hann með lítilsvirðingu. „Þegiðu, bjáninn
þinn,“ sagði hann, og svo lauk hann frásögninni ótruflaður.
Þegar mamma var búin að heyra alla söguna, sagði hún:
„Þú borgaðir allt, sem Jonni átti að kaupa, til þess að
pabbi hans yrði ekki reiður við hann. En nú sérðu eftir
öllu saman vegna þess, að þú átt enga peninga eftir.
Heldur þú, að nokkur megi sjá eftir að hafa gert góðverk?
Ef þú hefðir verið i sporum Jonna, hefðir þú ekki viljað,
að einhver hefði komið og hjálpað þér? Þú veizt vel, hver
á afmæli á jólunum, og nú ætla ég að segja ykkur, hvað
hann sagði einu sinni: „Gerið fyrir aðra það sem þið
viljið, að aðrir geri fyrir ykkur. Nú hefur þú gefið Jesú-
barninu jólagjöf, þegar þú hjálpaðir Jonna, en ef þú sérð
eftir því, þá tekurðu gjöfina aftur, og það megum við aldrei
gera. Og beztu gjöfina gefið þið okkur foreldrum ykkar
með því að vera ævinlega góðir drengir."
„Gott kvöld,“ það var pabbi, sem var kominn inn á
mitt gólf, áður en þau vissu af, og nú fékk hann að heyra
alla söguna.
„Það gleður mig, að þú skyldir hjálpa Jonna, Palli minn,“
sagði pabbi. „Nú verða jólin miklu gleðilegri hjá okkur, af
því að þú gerðir það. Á eftir förum við allir þrír niður í
bæ, en mamma ætlar að vera heima á meðan og skreyta
jólatréð. Þá skuluð þið kaupa eitthvað fallegt handa Jonna.
Auðvitað kaupum við svo eitthvað handa mömmu, en við
segjum ekki, hvað það verður," bætti pabbi við leyndar-
dómsfullur á svip.
Lilja Bergþórsdóttir.
563