Æskan - 01.11.1970, Page 74
Hilmar
Jónsson.
Eins og kunnugt er af septemberblaði Æskunnar hefur
Sigurður Gunnarsson látið af starfi stórgæzlumanns, en
því hefur hann gegnt með prýði í 9 ár. Við hefur tekið sá,
sem þetta ritar. Vil ég láta það vera mitt fyrsta verk að
þakka Sigurði hin miklu störf hans f þágu Unglingaregl-
unnar. Jafnframt óska ég eftir góðu samstarfi við gæzlu-
menn barnastúkna og yfirhöfuð alla þá, sem vilja leggja
félagsskap okkar lið. I ágúst síðastliðnum hélt Unglinga-
reglunefnd fund með umdæmis- og þinggæzlumanni ungl-
ingastarfs. Kom fram á þeim fundi ósk um, að I upphafi
starfsárs væru gæzlumenn barnastúkna kallaðir saman til
skrafs og ráðagerða. Einn sllkur fundur hefur nú þegar
verið haldinn fyrir svæði Umdæmisstúku nr. 1 I Keflavik 26.
september. Mættir voru á fundinum 17 gæzlumenn. Haldið
var þarna fróðlegt erindi um fíkniefni og fiknilyf af Krist-
jáni Péturssyni deildarstjóra á Keflavíkurflugvelli. Að því
loknu voru fyrirspurnir. Þar næst flutti Sigurður Gunnars-
son greinargott erindi um Unglingaregluna, sögu hennar
og framtíðarverkefni. Tóku allir fundarmenn þátt i um-
ræðum um það efni. Var það skoðun allra, að þessi starfs-
högun væri mjög æskileg. Þá var lögð áherzla á nauðsyn
leiðtoganámskeiða. Það er von mín og ósk, að aðrar um-
dæmisstúkur sjái sór fært að undirbúa slika ráðstefnu.
Hún verður áreiðanlega öllum þeim hvatning, sem hana
sækja. Fylgir hér með mynd af þeim, sem sóttu ráðstefn-
una í Keflavik. Að lokum vil ég hvetja alla unga sem aldna
til að senda mér myndir og annað efni, sem birt verður
hér á þessari síðu Unglingareglunnar.
Hilmar Jónsson.
622