Æskan - 01.11.1970, Side 86
—
ÍSLENZKfl
flugsagan
v ;; ;-i_13_99
Ljósm.: N. N.
Hér birtast tvær myndir, sem ekki var rúm fyrir í seinasta þætti.
Að ofan er mynd af TF-KAG, en að neðan er mynd af TF-ISH
eins og hún lítur út í dag.
Ljósm.: N. N.
Ljósm.: Arngrimur Sigurðsson.
Ljósm.: N. N.
NR. 36 TF-KAH
PIPER CUB
Þessi flugvél var skrásett hér 24. ágúst 1946 sem TF-KAH,
eign Flugskóla Akureyrar. Hún var keypt hingað ný frá verk-
smiðju og ætluð til kennslu- og einkaflugs.
Hún var smíðuð 25. júní 1946 hjá Piper Aircraft Corporation,
Lock Haven, Penna., U.S.A. Framleiðslunr. var 18255.
15. sept. 1948 kaupa Sverrir Jónsson og Sveinn Ólafsson
flugvélina (skr. 7. 10. 48).
14. marz 1950 hefur flugvélin verið endurbyggð og yfirfarin
(og lofthæfisskírteinið endurnýjað til 10. marz 1951).
28. ágúst 1950 rakst annar vængur flugvélarinnar (í lágflugi) í
fjárhús við Hllðarenda í Ölfusi. Flugvélinni var þó flogið til
Reykjavíkur, en skrokkgrind hennar hafði mjög skekkzt.
18. apríl 1951 eyðilagðist flugvélin I eldsvoða á Reykjavíkur-
flugvelli.
(Henni hafði verið flogið 3465 tíma).
PIPER J-3C-65 CUB: Hreyflar: Einn 65 ha. Continental A-65-8.
Vænghaf: 10,72 m. Lengd: 6,82 m. Hæð: 2,02 m. Vængflötur:
16,58 m2. Farþegafjöldi: 1. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 326 kg. Há-
marksflugtaksþyngd: 544 kg. Arðfarmur: 107 kg. Farflughraðl:
115 km/t. Hámarkshraði: 195 km/t. Flugdrægi: 340 km. Hámarks-
flughæð: 4.000 m. 1. flug: 1938.
NR. 37 TF-TUK, -VIB
PROCTOR I.
Skrásett hér sem TF-TUK 10. september 1946; elgandi var
Kristján Steindórsson. Flugvélin var keypt í Bretlandi (P 6183),
og var hún ætluð til einka- og farþegaflugs.
Hún var smíðuð 1941 hjá Percival Aircraft Ltd., Luton, Englandi.
Raðnúmerið var P 6183.
13. október 1946 hlekktist flugvélinni á í lendingu á Vestmanna-
eyjaflugvelli. Gert var við flugvélina aftur mjög fljótlega.
634