Skírnir - 01.12.1920, Page 7
Skírnir]
Jón Jónsson Aðils.
229
valdi læknisfræði til náms, muni með fram hafa stafað af
þvi, að hann hafi fellt hug til náttúruvísinda í latinuskól-
anum, einkum vegna frábærrar kennslu í þeim greinum
þar, en þá kennslu hafði haft á hendi Þorvaldur nú pró-
fessor Thoroddsen, en hann mat Jón mest allra kennara
sinna í latinuskólanum. En læknisfræðanám var þá með
nokkurum öðrum hætti en nú, með því að þá urðu læknis-
efni, áður en kæmi að reglulegu lækninganámi, að ljúka
prófi í náttúruvísindum. dýrafræði, grasafræði og efna-
fræði. Jón tók próf í heimspeki við háskólann í júní-
mánuði 1890 með fyrstu einkunn. En eigi leið á löngu
áður en Jón fann það, að hann myndi lítið yndi hafa af
læknisvísindum, og er hann hafði verið tvo vetur að því
námi, hvarf hann frá því. Fer svo oft ungum náms-
mönnum, að þeim veitir oft erfitt að átta sig á því, hvert
öám þeir skuli velja til undirbúnings lífstarfi sínu, og
getur farið svo, að þeir reyni hverja námsgreinina af
annarri, og áður varir er timi óg fé þrotið, og þeir standa
uppi ævilangt með nafnbótina. cand. phil. Þetta hendir
oft ekki þá lökustu. Er oft hér á landi litið óvægilega á
þá menn af almenningi, sem auðvitað skilur ekki, að
þessir menn eru oftast að leita að sjálfum sér, starfsviði
sjálfra sín. Eiga við um þetta ummæli úr blaðagrein eftir
Jón sagnfræðing sjálfan *) ». . . Hitt er aftur á móti
ófyrirgefanlegt að koma þeirri skoðun inn hjá fólki, að
það sé minnkun að hætta við námið, áður en úrslita-
innsiglið, kandidatsprófið, er fengið, og að það sé niður-
iæging að taka til iíkamlegra starfa eftir að hafa hand-
fjallað bækur, blek og penna á uppvaxtarárunum.«
En eftir að Jón hafði horfið frá lækningariáminu, leið
ekki á löngu, áður en bann fyndi sjálfan sig eða þá fræði-
grein, sem tók hug hans fanginn og hann skyldi helga
krafta sína, eftir því sem efni hans leyfðu. Nu tók hann
að leggja stund á sagnfræði, einkum sögu Norðurlanda,
°g þó einkannlega sögu íslands. Þó fór Jón þar sem jafn-
’) „Menntunin og lifið“, Elding 1901, 41. tölnbl.