Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1929, Blaðsíða 8
PáskatímabiliS.
Kirkjuþingiö í Nicæa, er haldið var árið 325 eftir
Krists fæðing, ákvað og leiddi í lög kirkjunnar, að páska
hátíðin skyldi ætið haldin vera hinn fyrsta sunnudag eftir
fyrsta tungl, er springi út næst eftir 20. marzmán. Sam-
kvæmt ákvæði þess getur páskahátíðin átt sér stað á 35
daga tímabili, tiefnilega á timabilinu frá 22. marz til 25.
apríl, að þeim dögum báðuin meðtöldum. Þetia tímabil
er uefnt páskatímabilið. Af þessu leiðir, að ef tungl væri
fult 21. marz, og 22. marz bæri upp á sunnudag, þá yrði
sá dagur (22.) páskadagur. Fyr á ári ge'a páskar aldrei
orðið. Þetta átti sér stað árið 1818. En sé tungl fult 18.
apríl og 18. april bæri upp ásunnudag, yrði næsti sunnu-
dagur páskadagur, nefnil.25. apríl. Það kom fyrir síðast
árið 1886.
Sóltími.
Sólarhringur er sú tímalengd, ei líður á milli þess, er
sólin gengur yfir ákveðna hádegislínu, og er það hin eðli-
legasta skifting tímans. En sökum hinnar mismutiandi
hreifingar jarðarinnar umhverfis sólina og sökum bugsins
á sólargangslínunni (Ecliptic), er aldrei nákvæmlega jafn-
|angur tími milli þess, er sól gengur yfir ákveðna línu. Af
því leiðir, að það er lítt mögulegt að setja stundaklukku
eftir sól. Til að ráða bót á þessum mismun, setja menn
svo að önnur sól sé til, og að húti gangi með jöfnum hraða
þvert yfir miðjarðarlínuna. Er sú ímyndaða sól þá stund-
unt á undan og stundum á eftir hinni einu virkilegu sól.
Er sá mismunur mestur 16 mínútur. Réttur sóltími er
miðaður við hina virkilegu sól, en hinn svo kallaði “meðal
sóltími“ aftur á móti, er miðaður við hina ímynduðu sól.
Til skýringar má geta þess að það er að eins á tveimui
dögum á árinu—á jafndægrum haustog vor—að “meðal
sóltíma” og réttum sóltíma ber saman, því á þeim tveim
dögum að eins er buglínan eða sólargangslínan yfir
miðjarðarlínunni.