Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1929, Blaðsíða 66
56
bjargar og séra Matthías voru systra synir. Svo vildi til
að séra Matthías kom að Gufudal, sá frænku sína og leizt
ekki á meðferðina á henni, og með þvi að hann var á
suðurleið, kom hann að Ólafsdal. Þar bjó þá Jón Bjarna-
son, móðurfaðir Ingibjargar. Sagði Matthías honum,
hvers hann hefði orðið var, og kvað honum betra að líta
eftir dótturdóttur sinni áður ver færi. Jón, sem var allra
mesti rausnar karl, lét ekki segja sér þetta tvisvar, og
sendi þegar rnann eftir Ingibjörgu. Þegar maðurinn, sem
sendur var, kom með Ingibjörgu, þótti Jóni saga Matt-
híasar að engu ýkt. Ingilbjörg var nokkur ár hjá afa sín-
um í Ólafsdal. Fór þá til föður síns, sem þá var giftur
aftur og bjó að Miðhlíð á Barðaströnd og var þar eitt ár.
Eiftir það vann hún fyrir sér sjálf. Til Ameríku fór
hún 1889 og þá aftur til föður síns, sem lcomið hafði aö
heiman nokkrum árum áður og bjó í Garðar-bygð, N. D.
Árið 1891- giftist hún fyrra manni sinum, Eiriki Hjálm-
arssyni, ættuðum úr Mjóafirði. Þenna mann sinn misti
hún eftir sex mánaða hjónaband. Með honum átti hún
eina dóttur, Jónu Sólveigu, gift Óla ísakssyni í Blaine.
Eftir að Ingibjörg misti fyrri mann sinn, réðist hún til
Arnhjargar, móður Gísla. Þar giftist hún Gísla eins
og fyr segir. — Ingibjörg er kvenskörungur og ágætis-
kona, eins og hún á kyn til.
Ófeigur Ófeigsson Runólfssonar og Kristínar Gísla-
dóttur Jónssonar, ættaður af Nesjum í Austur-Skafta-
fellssýslu er fæddur 1864. Kom að heimam889 til Win-
nipeg og vann þar nokkur ár við verzlun. Hann fluttist
vestur til Blaine 1902, var í verzlunarfélagi með Andrew
Daníelssyni, getið hér að framan. Þegar þeir félagar
seldu verzlun sina, keypti Ófeigur land nokkrar mílur
frá bænurn, alt í skógi og óbygt. Kom hann þar upp
vönduðu heimili, hrensaði 10 ekrur og bjó þar nokkur ár.
Fyrir 4 eða 5 árum brá hann búi og flutti til bæjar-