Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1932, Qupperneq 27
25
einn af helztu forvígismönnum enskra verkamanna
og ekki ósjaldan foringi þeirra.
Árið 1895 brosti gæfan við MacDonald. Þá
kyntist hann Margaret Ethel Gladstone, af ætt
stjórnmálaskörungsins' alkunna, dóttir frægs efna-
fræðings. Þau giftust í nóvember næsta ár og
settust að í Lundúnum; en oft voru þau hjónin á
ferðalögum utan Evrópu, auk margra ferða þeirra
þar í álfu á alþjóðafundi verkamanna. Var frú
MacDonald hægri hönd manns síns í ölum störfum
hans og vann verkalýðsflokknum jafn dyggilega og
hann. Hún var gáfukona og mannkosta og vinsæl
mjög. Er ekki ofmælt, að hjónaband þeirra Mac-
Donalds væri fagur, samstiltur ástaróður. Sæti.1
því engri furðu, þó “sól brygði sumri” í lífi hans,
er kona hans andaðist um örlög fram, frá fimm
börnum þeirra, árið 1911. í minningarriti sínu um
hana (“Margaret Ethel MacDonald’’, 1912), er
liann ritaði að beiðni liennar á dánardægri, hefir
hann reist henni fagran os verðugan bautastein.
Með óskeikulli snild lýsir hann þar hinni göfugu
konu, er hafði bæði mikil og góð áhrif á hann, var
honum skjól og skjöldur og hvatti hann til dáða á
andviðrisstundunum, þegar við sjálft lá, að liann
legði árar í bát. Sama árið og kona hans dó,
misti MacDonald einn sona sinna, hinn mesta efn-
ispilt, og móður sína. Það var honum því sann-
kallað sorgarár. En hann bar liarm sinn með still-
ingu og fann svölun í margbreyttum og ábyrgðar-
þungum störfum sínum.
Það yrði langt mál, ef rekja ætti öll spor Mac-
Donalds á árunum 1895—1911. Fyrri hluta þess
tímabils vann hann einkum að eflingu verkalýðs-
flokksins; var þá oft á brattan að sækja, en hug-
sjónaást hans og bjartsýni konu hans knúðu hann
til framsóknar, þó á móti blési. Úrslit kosninBí-
anna 1906 sýndu það einnig deginum ljó-sar, að
MaoDonald og samherjar hans höfðu ekki unnið
fyrir gýg; 29 frambjóðendur verkamanna náðu það