Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1932, Page 106
104
á Haukastöðum og Kristrúnar í Fagradal, móður
Kristjóns. Þau giftu sig 14. júní 1924, og settust
á landið sama ár. Þar heitir Helluvað. Börn þeirra
eru tvö, Ólafur Páll og Sigrún Borga. Indíana er
gáfuð kona, fróð og skemtileg, stjórnsöm hús-
freyja og hög að heimilisstörfum.
Landnemi, parta af 34 og 35.
Bjarni Jóhannsson. — Foreldrar hans voru Jó-
hann Jónsson og Gunnlaug Bjarnadóttir, er lengi
bjuggu í Fosskoti í Núpsdal í Miðfirði. Hann flutti
vestur með foreldrum sínum 1876, þá 9 ára. Faðir
hans dó litlu síðar. En landið tók Bjarni 1888, er
hann nefndi Engihlíð. Bjó hann þar fyrst með
móður sinni. Kona hans er Steiriþóra Þorkelsdótt-
ir, merk kona og ágætum kvennkostum gædd. Þau
giftust 1896. Faðir hennar var Þorkell bóndi á
Fellsenda í Þingvallasveit, Kristjánsson bónda í
Skógarkoti, Magnússonar. Móðir Magnúsar var
Oddný, dóttir Bjarna landlæknis Pálssonar. Rann-
veig móðir hennar var dóttir Skúla landfógeta
Magnússonar. Móðir Steinþóru var Birgitta Þor-
steinsdóttir bónda í Stíflisdal. Hennar móðir hét
Guðný. Þeim Engihlíðarhjónum er vel farið, þó
aldrei hafi þau haldið sér fram og verið fáskiftin
um annara athafnir. En gott fylgi hafa þau léð
þeim félagsmálum, er til nytsemdar horfa. Bjarni
er hægur maður í dagfari, djúphygginn og þéttur
fyrir með sínar skoðanir, sem hann byggir á ná-
kvæmri ígrundun. Hann hefir lengi haft með hönd-
um að skrifa dagbækur, er sjálfsagt hafa að geyma
ýmsa fróðleiksmola, er takast mættu í frumbyggja-
sögu nýlendunnar. Þrátt fyrir það hefir hann
stundað búskapinn með alúö, því hann er hinn
mesti eljumaður, og er efnahagurinn í góðu horfi.
Þar á líka Steinþóra góðan hlut að með honum, í
umhyggjusemi og skörungsskap. Nú eru þau hætt
við búskapinn og flutt til Árborgar. — Þrjá sonu
hafa þau eignast: Jóhann, Gunnlaug og Þorkel.
Allir eru þeir hinir mætustu drengir og prúðustu