Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1932, Qupperneq 121
119
Kirkjufélagsins, að tveimur undanskildum, söfnuð-
l unum í Winnipeg og Selkirk. — Ekki veit eg með
hvaða rökm Tónias studdi mál sitt á fundinum, að
láta söfnuöinn heita þessu nafni, en eg hygg að í
nafninu felist ekki svo lítil mannlýsing, á hinum
mæta, burtu horfna bróður, er uppástunguna gerði.
k — Þau Engimýrarhjón Tómas og Guðrún, heyrðu
til Bræðrasöfnuði frá byrjun vegar og til hins síð-
asta, hvort um sig yfir fimtíu ár, hann nokkuð
yfir fimtíu og tvö ár, en hún yfir fimtíu og fjögur.
Gullbrúðkaup veglegt og mikiö var þeim Engi-
mýrarhjónum haldið fyrir nokkrum árum í sam-
komusalnum í Riverton. Var þar mikill mann-
fjöldi saman kominn. Voru þeim færðar þar dýr-
ar gjafir og var rnælt fyrir minnum, eins og altítt
er í veizlum. Efnið úr ræðunum man eg ekki
yfirleitt, en eitt atriði, er þar var bent á, varð mér
minnisstætt. Það var um kynsæld þeirra Engi-
mýrarhjóna, og það hve lítið að fjölskyldan hefði
enn dreift sér. Það mun hafa verið Sveinn kaup-
maður Thorvaldson, er mintist á þetta efni. Tald-
ist honum svo til, að afkomendahópur, börn og
barnabörn og barnabarnabörn þeirra Tómasar og
Guðrúnar mundi þá vera fult sextíu manns, er alt
ætti heima á sem næst einni fermílu, í Riverton-
bæ og þar í kring. Þessi samheldni hélzt á meðan
þau gömlu, góðu hjón hföu bæði, en hefir að
t nokkru raskast síðan, en þó minna en venjulega
hefir átt sér stað.
Tómas Ágúst Jónasson andaðist á heimili sínu
í Riverton þann 1. sept 1929, heldur betur en 84
ára gamall. Guðrún Egedía Jónasson, kona hans;
lézt á því sama heimili þann 8. júní 1931, hátt á
níunda ári yfir sjötugt. Jarðarfarir þeirra beggja
voru afar fjölmennar. Fóru þær fram með sama
hætti, byrjuðu með húskveðju frá húsi þeirra
hjóna, Rannveigar dóttur þeirra og manns hennar,
J. P. McLennan, sem er fast við það hús, er þau
öldruðu hjón bygðu sér og áttu heirna í eftir að