Heimilisvinurinn - 01.05.1905, Page 10

Heimilisvinurinn - 01.05.1905, Page 10
10 stund til lesturs og menntunar, átti enga kunningja og skipti sjer ekkert um soll unga fólksins. Seinna varð hann bókhaldari, og nú var hann orðinn vel- megandi verzlunarstjóri. Hvern skyldi hafa grunað að hann Jói litli kæm- ist svona vel áfram ? Nú var hann orðinn ríkur og mikils virtur. Það var ekki margmennið í kring um hann. Hann sat eirn í herbergjum sínum, þegar dagsstörf- um var lokið, reykti pipu sína endilangur í legu- bekknum eða las í bókum, sem hann hafði gnægð af. Hann var ómannblendinn, en áreiðanlegur í öll- um viðskiptum og strangur húsbóndi. — Hann hafði lítil hlýindi reynt og sýndi þau heldur ekki neinum. Þungur á svip og þegjandalegur gekk hann jafnan leiðar sinnar, leit hvorki til hægri nje vinstri, lypti ögn hattinum þegar honum var heilsað á förnum vogi, annars leit út fyrir að hann sæi engan. Nei, hann var ekki viðmóf.sþýður maður! Sama sagði hún Hildur gamla, bústýran hans. „Jeg get svarið fyrir að jeg hafi nokkurn tíma sjeð hann brosa“, sagði hún, „í þessi 10 ár, sem jeg hefi verið hjá honum, og hann hefir sjaldan sagt nema já eða nei, hafi jeg yrt á hann“, og gamla konan hristi höfuðið. Og þó dauðleiddist lionum stundum: „Til hvers er þetta lif? Að safna peningum, sem eptir minn dag renna, ja, hver veit hvert? Lesa, reykja, sofa, þorða, reiknq, — ■—? Er það tjlgangurinn!? Eng-

x

Heimilisvinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.