Heimilisvinurinn - 01.05.1905, Side 12

Heimilisvinurinn - 01.05.1905, Side 12
12 nærri búinn að gleyma því, að hann hefði nokkurn tíma cát.t systur. Hann hafði heldur ekki sjeð hana, síðan þau voru börn. Hann mundi óljóst eptir henni, hún var ijóshærð, bláeyg, undur bliðleg á svipinn, kát og sí-hlæjandi; þetta mundi hann. Hann hafði frjett af honni fyrir mörguin árum, þá var hún gipt trjesmið á Patreksfirði. Svo heyrði hann eitthvað um að hann væri dáinn. Hann skrif- aði systur sinni aldrei, og hún ekki honum, — þau voru eiginlega dáin hvert öðru. Það fannst honum að minnsta kosti. Og nú í dag hafði hann fengið brjef frá þessari systur sinni. Hann tók brjefið og las: „Elsku bróðir minn! Þótt langt sje síðan að við höfum sjezt, þá vona jeg samt að þú inunir eptir henni „Yeigu“ systur þinni, sem þú varst svo góður við einu sinni heima hjá foroldrum okkar. Jeg hefi ekki annað að flýja en til þín, kæri bróðir. í*ú ert eini maðurinn, sem jeg á að, eini maðurinn, sem jeg treysti svo að jeg geti trúað fyrir einka barninu mínu. Jeg veit að það dregur nær dauða fyrir mjer, jeg finn hvernig kraptarnir dvína með degi hverj- um, jeg veit að jeg á ekki langt eptir, — en það gjörir ekkert, jeg er reiðubúin sjálf; jeg er þess fullviss að liann, sem dó fyrir okkur á kross- inum, hafi afmáð allar minar svörtu syndir, og hana tekur við mjer, þegar heim er komið, En,

x

Heimilisvinurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.