Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1920, Side 13

Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1920, Side 13
CIN af ljóðfórnum þeim, er austurlenzka skáldið og spekingur- inn, Rabindranath Tagore, færir meistara sínuni, hljóðar þannig: »Mig langaði til að biðja þig um rósasveiginn, sem þú barst um hálsinn; en eg þorði það ekki. Þess vegna beið eg til morguns, í þeirri von að finna nokkur rósablöð í rúmi þínu, er þú færir á fætur. Sem betlari beið eg og leitaði, þegar dagaði, að fáeinum blöðum, sem eg vonaði að orðið hefðu eftir. Vei mér! hvað er þetta? Hvílíkan kærleiksvott hefir þú auð- sýnt mér? Eg finn hér ekki blóm, ekki kryddjurtir né ilmvatnsker. Það er sverðið þitt, hið mikla sverð þitt. Það er bjart sem elding og þungt sem Þórsdunur. Hið nýfædda morgunljós lýsir inn um gluggann; og það breiðist yfir hvílu þína. Söngfuglinn syngur og spyr: »Kona hvað hefir þú hlotið?« Það er ekki blóm, ekki kryddjurtir né ilm- vatnsker, heldur hið ógurlega vopn — sverðið þitt. Eg sit hér undrandi og brýt heilann um, hvað þú vilt, að eg geri við gjöf þína. En eg finn engan stað, þar sem eg get geymt hana. Og eg kynoka mér við að bera það, eins veikburða og eg er. Það veldur mér sársauka, er eg þrýsti því að brjósti mér. Eg skal þó bera heiður þann í hjarta mér, sem eg hef hlotið af þess- ari sársaukagjöf. Upp frá þessari stundu skal eg ekkert óttast hér í heimi. Og þú 11

x

Jólablað félagsins Stjarnan í austri.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablað félagsins Stjarnan í austri.
https://timarit.is/publication/439

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.