Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1920, Blaðsíða 46
Þá mælti Ananda:
»Hvernig eigum vér að þekkja hann?«
Hinn dýrðlegi svaraði og sagði:
»Hann mun þekkjast sem Maitreya, það er að segja: heiti hans
er kærleikur«. (Gospel of Buddha).
Nú fer líka eftirvæntingaralda með Búddhatrúarmönnum víða um
lönd eftir komu Maitreya, kærleiksmeistarans, sem Ðúddha spáði um.1
N\eð Múhamedstrúavmönnwn.
Sú trú er getur heitið fullkomnasta eingyðistrúin er Múhanieds-
trúin, því að jafnvel spámaðurinn Múhamed hefir aldrei verið tek-
inn upp í guðatölu með fylgismönnum sínum. Þeir bera lotningu
fyrir honum sem guðinnblásnum spámanni, en þeim hefir aldrei
dottið í hug að tigna hann sem guðmenni eða guð. En hugmynd
Múhamedstrúarmanna um guð hefir alt af verið hrein og háleit og
ekki staðið að baki hugmyndum annara guðstrúarbragða, eins og
sést á eftirfarandi ummælum hins mikla spámanns, Múhameds:
»Seg guð er einn, guð er eilífur. . . . Hann er hinn fyrsti og
hann er líka hinn síðasti. Hann er hin skynræna tilvera og hann
er líka hin óskynræna og hulda. Hann er alvitur. Það er enginn
guð til, nema hinn lifandi guð, sem er frá eilífð til eilífðar. Hann
sigrast aldrei af svefni né blundi. Allir hlutir heyra honurn til, bæði
«
1) Æðsti kennimaður Búddhatrúarmanna austur í Burma, Ledi Sayadaw að
nafni tók að boða komu mannkynsfræðarans fyrir nokkrum árum. Hafði hann
helgað sig guðrækilegu Iífi, þegar hann var tólf vetra og sökt sér niður í and-
legar iðkanir og íhuganir í tuttugu og sjö ár. Segir hann að mannkynsfræðar-
inn Kristur eða Maitreya, eins og hann er nefndur í Austurlöndum, muni koma
opinberlega fram áður langt um Iíður og brýnir mjög fyrir fylgismönnum sínum
að búa sig undir komu hans, með því að kosta kapps um að lifa óeigingjörnu
lífi, temja sér íhuganir og forðast kjöfát. Fylgismenn hans voru 1916 um 50,000
og hafði þá fjölgað um 30,000 á tveim árum.
44