Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1920, Blaðsíða 38
»Eg lít, ó, guð, alla guðina í þér. . . . Líkami þinn á sér engin
takmörk, af því, að þú ert alstaðar. . . . Þú ert sem ljóshaf, er lætur
ljósmagn sitt falla í allar áttir. Þú ert í augum mér sem logandi
bál, sem ljómandi röðull og hvaðan úr himninum sem á þig er
litið, ert þú jafn-ótakmarkaður. Þú ert háleitari en svo, að hugur-
inn fái skilið þig, sem ert ævarandi. Þú ert hinn himneski fjár-
sjóður vor, ert í öllum hlutum, ert hið órjúfanlega lögmál tilverunnar,
hinn óumbreytanlegi vörður hennar og verndari. . . . Ásjóna þín
er sem logandi fórnareldur, er vermir með geislum sínum allar
veraldirnar. Þú einn ert sem fyllir bæði himnana og jörðina og
öll þau svæði, sem liggja á milli himnanna og jarðarinnar. Verald-
irnar þrjár verða að kikna, ó, þú hinn voldugi, fyrir hinni ógurlegu
mynd þinni«. (XI. 15—20).
Og Arjúna segir ennfremur:
»Veröldin fagnar því með réttu yfir mikilleik þínum og tign og
lofsyngur þér. Þú ert frumguðinn og frummennið, hinn heilagi bú-
staður alls þess, er lifir; þú ert sá, er þekkir hlutina og hlutirnir,
sem verða þektir. Þú ert vor himneski dvalarstaður. I hinum ótak-
markaða líkama þínum liggja heil stjörnuveldin á víð og dreif. . . .
Þú ert alt f öllu. Vald þitt er ótakmarkað og mætti þínum er
hvergi markaður bás. I þér eru allir hlutir og þess vegna ert þú
líka alt«. (XI. 15—20, 40).
Þessi er guðshugmynd Indverja og þannig hefir hún verið öld
eftir öld. Og ef með sanni má segja um nokkra þjóð, að hún hafi
látið hugmyndina um guð vekja hjá sér óblandna lotningu, þá eru
það Indverjar. Trúarlífið hefir verið, að því er séð verður, miklu
ríkara hjá þeim en nokkurri annari þjóð í heimi. Sést það meðal
annars á því, að fjöldi hinna mestu vitmanna þeirra hefir lagt inn
á þriðja áfanga trúarlífsins, það er að segja, ekki látið sitja við það
að játa einhverja sérstaka trú eða skoðun eða jafnvel að helga
36