Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1920, Side 45

Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1920, Side 45
að lærisveinum sínuni eða fylgismönnum. En það er þó talið víst, að hann hafi átt við guð eða drottin allsherjar með þessum orðum: »Til er, ó, lærisveinar mínir, það sem hefir ekki fæðst né tekið nokkrum þroska. Ef það, ó, lærisveinar, væri ekki, það, sem er ekki fætt, ekki tilorðið, ekki skapað og hefir ekki tekið nokkr- um þroska, þá hefði ekki heldur þekst uppruni þess, sem er fætt, til orðið, skapað og hefir tekið þroska. Sannlega segi eg yður, ó, lærisveinar mínir, að það er til, sem hefir ekki fæðst, ekki orðið til, ekki verið skapað né tekið þroska. Og þess vegna þekkist upp- runi þess, sem hefir fæðst, orðið til, verið skapað og tekið þroska«. Hins vegar trúa fylgismenn meistarans Gautama Búddha því, að margir guðdómlegir fræðarar eða »Búddhar« hafi komið og eigi meira að segja eftir að koma til jarðarinnar. Trú þessa reisa þeir á ummælum, sem meistara þeirra eru eignuð í einu af hinuni við- urkendu helgiritum þeirra. Eru þau á þessa leið: »Hver á að fræða oss, þegar þú ert farinn?« spurði Ananda, lærisveinninn, sem Búddha elskaði mest. Hinn dýrðlegi svaraði og sagði: »Eg er ekki hinn fyrsti Búddha, er koniið hefir til jarðarinnar, og eg mun ekki heldur verða hinn síðasti. Annar Búddha mun koma inn í heiminn, í fyllingu tímans, hann mun verða heilagur og hafa öðlast hina æðstu upplýsingu. Hann verður gæddur lífspeki og þekkir allan heiminn og verður óviðjafnanlegur leiðtogi, meist- ari engla og manna. Hann mun opinbera yður hin sömu sannindi, sem eg hefi kent yður. Hann mun flytja yður sína trú, sem verður dýrðleg í byrjun, dýrðleg þegar hún hefir náð hámarki sínu og dýrðleg þegar hún hefir náð takmarkinu í hinu innra sem ytra. Hann mun kenna mönnum að lifa hreinu trúarlífi og heilögu eins og eg hefi kent yður. Og lærisveinar hans munu verða mörg þús- und, þar sem mínir eru ekki nema mörg hundruð«. 43

x

Jólablað félagsins Stjarnan í austri.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablað félagsins Stjarnan í austri.
https://timarit.is/publication/439

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.