Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Side 3

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Side 3
iðunn| Jólagestir. Eftir Hans Aanrud. [Hans Aanrud, einn hinna helztu og beztu af yngri skáldsagnahöfundum Norðmanna, er fæddur 1863 i Gaus- dal vestra í Noregi. Fyrsta smásagan hans kom út 1887, og fyrsta smásagnasafniö 4 árum síðar, en siðan hvert af öðru. Eru nú öll rit lians komin út í 6 bindum á kostnað Hyldendals. Aanrud er einkar góðlátlegur og elskulegur höfundur. Sérstaklega er bændasögum hans við brugðið. Þykja þær öllu sannari en bændalýsingar Bjwrnson’s og Þó sagðar af jafnmikilli snild. — Með því að »Iðunn« hefir fengið sérstakt leyfi Gyldendals til þessara þýðinga, er eftirþrentun bönnuð.] Það var orðið næstum aldimt inni í hinni rúm- góðu stofu í hjáleigunni. Eldurinn í lilóðunum var Því nær útbrunninn, en kastaði þó við og við llökt- andi glætu fram á gólfið; en svo dauf var hún, að hún náði ekki út í skotin. Á miðju gólfinu stóð há og fölleit kona. Rendi hún augunum hálf-raunalega til stóra rúmsins í stofuhorninu og gekk svo hljóðlega að hurðinni °g út. Það brast í hurðinni af frosthörkunni, jafnvel eflir að hún var sígin aftur. Mátti síðan heyra marra í snjónum með húshliðinni og gaflinum undan hæg- uni, hykandi skrefum. Stöðnuðu þau hinum megin Vlð húsið undir glugganum. En fyrir glugganum hékk hvítt nátttjald, er náði upp fyrir hann miðjan. Nú var alt orðið hljótt. Að eins mátti heyra liírð 1 stóru klukkunni inni í stofunni. Það var eins og tðunn IV. 11

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.