Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Page 27

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Page 27
IÐUNN] ísland fullvalda ríki. 185 frá Vogi og Þorstein Jónsson. Iívaddi sú nefnd sér til aðstoðar þá Gísla ísleifsson, aðstoðarmann í stjórnarráðinu, og Þorst. Porsteinsson hag- stofusljóra. Sambandslaganefndin settist á rökstóla í kennara- stofu háskólans 1. júlí þ. á. og sat þar öðru hvoru til 18. s. m., er hún liafði lokið starfi sínu og sam- bandslagafrumvarpið var fullgert og undirritað. Nú mun margan fýsa að vita svona undan og ofan af um það, hvernig samningar þessir gengu og hversu þeim smámjakaði áfram; en »Iðunn« sér sér ein- mitt fært að svala forvitni manna að nokkru í þessu efni. Samningsumleitanirnar hófust 1. júlí á því, að ísl. defndarmennirnir gerðu grein fyrir þeim grundvallar- atriðum, er alþingi og þjóð vildu byggja samningana 3- Bentu þeir á hinn sögulega og lagalega rétt vorn, a að vér hefðum varðveitt tungu vora, menningu og þjóðerni, en að framsókn vor og framfarir síðustu ai'in sýndu það bezt, hversu ákjósanlegt það væri, að vér réðum oss sjálfir að öllu leyti. Samningar úiundu því geta tekizt á þeim grundvelli einum, að fsland yrði viðurkent fullvalda ríki í kon- Ungssambandi einu við Danmörku. Alt annað ^ri að líta á sem sérmál hvors ríkisins um sig, enda þótt annað ríkið (Danmörk) færi með fleiri eða fnerri mál í umboði hins um skemri eða lengri tíma. þessu svöruðu dönsku sendimennirnir s. d. á þann þ^tt, að enda þótt þeir vildu ekki fjölyrða um liina nkisrétlarlegu afstöðu landanna, mundu þeir þó geta diælt með eftirfarandi samningsatriðum við stjórn og þ'ng Dana: Gefin skuli út samhljóða sambandslög á dönsku islenzku þess efnis, að Danmörk og ísland séu 'jals og sjálfstæð ríki undir einum og sama konungi ttieð sameiginlegum ríkisborgararétti og sameiginleg-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.