Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Side 33

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Side 33
IÐUNN] ísland fullvalda ríki. 191 Þó eru sýnilega tvö atriði, sem hvorugur aðilja hefir 'viljað gefa neitt eftir af: ísl. nefndarmennirnir hafa ekki viljað gefa neitt eftir af hinni skýlausu viður- kenningu á fullveldi íslands, og dönsku nefndar- mennirnir hafa ekki viljað gefa neitt eftir af jafnrétti i'íkisborgaranna né fiskiveiðaréttinum þau 25 ár, sem samningurinn á að standa óhaggaður. Þótt þetta séu nú að vísu mikil lilunnindi fyrir Pæreyinga og Dani, þá er það þó litið á móts við skýlausa og yfirlýsta viðurkenningu Dana á ævarandi fullveldi og hlulleysi íslands. Pví með viðurkenn- ingunni á fullveldinu virðist íslandi sjálfu í lófa lagið uð haga bæði löggjöf sinni og stjórn næstu 25 árin svo, að því stafi engin veruleg hælta af jafnréttis- ákvæðinu. Gæti íslendingar á annan bóginn skóla sinna, að ekki sé t. d. liðið að kenna þar á öðru máli en íslenzku; og geri þeir á hinn bóginn viss ttientunarskilyrði og þekkingu á stjórnarfari og lög- 8jöf landsins að skilyrði fyrir kosningarrétli og kjör- gengi, virðist engin hætta þurfa að vera á því, að ’nnflytjendur geti nokkru sinni ráðið hér lögum og lofum. Og setji íslendingar líkt og Danir búsetu sem skilyrði fyrir öllum atvinnurekstri í landinu, öðrum ett fiskiveiðum; og gæti þeir þess á liinn bóginn að sinásmeygja ekki fjárhagslegum fjötrum á landið með miklum lántökum í Danmörku eða annarsstaðar, liá virðist atvinnurekstri og fjárhagslegu sjálfstæði ^undsins borgið. Alt er fengið með viðurkenningunni á fullveldinu, ef vér að eins kunnum með það að fara. þessi klunnindi, sem Danir hafa fengið nú um 25 ára bil, kafa þeir haft óátalið alt til þessa; en oss hefir jafnan skort viðurkenninguna af Dana hálfu fyrir því, að Ver værum frjálsir og fullvalda um vor eigin mál. Þessa viðurkenningu fengum vér 18. júlí 1918, og Því verður þessa dags minst sem eins hins helzta og

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.