Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Page 44

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Page 44
"202 Þórunn Richarðsdóttir: [ IÐUNN túnunum. Altaf er verið að biðja um að lána sér, fyrst og fremst allskonar áhöld, og svo bolla af kaffi, V2 pund af sj'kri o. s. frv. Þetta er argasti ósiður. Það þarf jafnt að kaupa hlutina fyrir jiessu, nærri því frernur, því að þá er þörfin orðin tvöföld. Og svo er oít skilað heldur meiru aftur en lánað var, bæði til að trj'ggja sér fremur næsta lán, og svo til að heita ærlegur í viðskiftum. En þá eru þetta orðin lirein og bein útlát, en enginn hagur, og styðst ekki við neitt nema fyrirhyggjuleysi og slóðaskap. Pví ekki t. d. brenna kaffi í tima, áður en hitt er alveg búið, og þurfa svo ekki að fá til láns á könnuna, þegar gesturinn er kominn. Það má segja um þad eins og fleira: »Svo eru hyggindi sem í hag koma«- -Eitt sinn kom til mín stúlka, sem var að finna vin- konu sína, er hún hafði ekki séð utn mörg ár og var nú farin að búa; hún var þar eina nótt. »Þótti yður gaman að koma til vinkonu yðar?« spurði ég- *Æ, ég gat svo sem ekkert talað við liana«, svaraði hún og komst við. »Hún átti ekkert brauð til og varð að fara að mala í kökur handa okkur, gera jiær og baka, og kom varla inn alt kvöldið«. Ætb það hefði nú ekki mátt haga þessu öðruvísi, svo að báðum hefði orðið meiri ánægja að? Jú, ég held það. Það er gamla sagan um forsjálu meyjarnar og óforsjálu, en hún er líka alt af ný. Eitt, sem stafar af þessum slæma ósið, er það, hve lítið verður að verki. Að vísu er nú orðið fátt kvenfólk á heimilum; en þó sér maður þess dæmi á stöku bæ, að með hagsýni og kostgæfni má gera mikið meira en víða er gert, t. d. að heimilisiðnaði. fað er t. d. ein kona í sveitinni minni, sem getur sýnt heimaunnin, handprjónuð brekán yfir hverju rúmi í stórri baðstofu. Slíkt er mikið verk, en bæði prýði og sómi að. Manni lcemur til liugar það, sem Telemakkus er látinn segja í Ödysseifskviðu Hómers

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.