Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Blaðsíða 50
208 íslenzkir listamenn: [iÐUNN
afbragðs-listamaður í ofan á lag, þegar honum tekst
upp.
Ríkharður rekur ætt sína norður í Skagafjörð til
Jóns nokkurs og Ásdísar[?], er íluttu þaðan búferlum
í lok 18. aldar alla leið austur að Kelduskógum á
Berufjarðarströnd. Urðu þau, eftir því sem sögnin
segir, þar bæði til undir skriðu nokkru síðar. Elzt
barna þeirra var Jón, og átti hann auk fleiri barna
Jón þann, er lengi bjó í Borgargerði við Djúpavog.
Ásdísi, sem giftist í Vestmanneyjar, og Lísibetu, er
giftist þórarni, syni Richards Long, sem var Eng-
lendingur. Þau þórarinn og Lisibet bjuggu á Núpi a
Berufjarðarströnd og áttu fjölda barna. Elzti sonur
þeirra var Jón, faðir Ríkharðar listamanns. Jón var
tvíkvæntur, átti 8 börn við fyrri konu sinni og misti
þau öll. En við síðari konu sinni, Ólöfu Finnsdóttur
frá Tungu í Fáskrúðsfirði, gat hann Ríkharð elztan
barna. Ríkharður fæddist í Tungu 20. sept. 1888, en
1 árs flullist hann með foreldrum sínum að Strýtu i
Hálsþinghá og ólst þar upp.
Lísibet, amma Ríkbarðar, var einstök gæðakona;
mátti hún ekkert aumt sjá og ól jafnvel rottur og
mýs í búi sínu. En Þórarinn Long, afi hans, var
maður fasthuga og fékst mjög við smíðar. Þetta gekk
að erfðum til Jóns, föður Ríkharðar, sem var smiður
hinn bezti og ákaílega vandvirkur, þótt lítið bsert
hann úr býtum fyrir smíðar sínar. En hann bafði
aftur þau áhrif á Ríkharð son sinn, að hann lók
að »föndra« (fást við smíðar), jafnvel áður en hann
man sjálfur eftir sér. Gerði þá faðirinn sér upp tsepi"
tungu við soninn og nefndi það »tálgufagurt«, sem
hann var að tálga og krota. Þegar Ríkharður vai
átta—níu vetra, var hann búinn að búa sér til alveg
sérkennilegan skurðstíl, auðvitað mjög svo einfafdan,
en þó frumlegan, enda engar fyrirmyndir að fara
eftir nema útskurður föður hans frá yngri árum.