Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Blaðsíða 65
IfiUNN]
Er sócíalisminn í aðsigi?
223
>ns, og hafa þar bæði betri og ódýrari vörur á boð-
stólum en verzlanir einstakra manna geta útvegað
sér. Sem dæmi þessa má nefna ýms skógerðahús á
Kretlandi, eins og t. d. Freeman, Hardy & Willis,
Idd., sem hafa 475 sölubúðir hingað og þangað um
alt land, og smjörlíkis- og ostagerðahús eins og t. d.
Maypole Dairy Co., Ltd., sem hefir hvorki meira
né minna en 822 sölubúðir víðsvegar um Bretland.
Sumum af útsölustöðum þessara vörugerðahúsa er
svo yfirlætislaust fyrir komið, að fólk grunar varla,
að það sé að eiga þar bein kaup við sjálfan fram-
leiðandann. Ljósmyndavélafélagið Eastman Kodak Co.
og Singer saumavélafélag eru nú orðin svo öílug
framleiðslu- og verzlunarfyrirtæki, að þau ná til allra
landa nú orðið. Eru þetta að eins nokkur dæmi, en
alls eru eitthvað um 70 þús. slíkra framleiðslu- og
verzlunarfélaga, sem eru að drepa einkaframtakið,
á Bretlandi einu saman.
Loks kemur það fyrir nú orðið, að þessi miklu
framleiðslu- og verzlunarfélög slái sér saman og
niyndi, svo litið beri á, stórefiis verzlunarhringa, er
að síðustu ná um allan hnöttinn, eins og t. d. hið
alþekta Standard Oil Co. Þessir hringar linna
sjaldnast fyr en þeir eru búnir að leggja undir sig
Iramleiðsluna og verzlunina 1 einhverri grein um
endilangan heim.
En hvað er nú það, sem hér er að gerast? Það er
sameignin og samstaríið, sein er að koma í staðinn
fyrir séreignina og einkaframtakið. En það skrítnasta
v'ð þetta alt saman er þó það, að þetta sívaxandi
samstarf og samvinna er að bola sjálfum eigendun-
U|n, sjálfum auðkýfingunum frá stjórninni á allri
l'essari framleiðslu. Eins og vélaiðnaðurinn á sínum
líina rændi verkamennina verkfærum sínum og hand-
verki, eins er nú liin margbrotna framleiðsla og
^óknu viðskiftasambönd að ræna auðmennina sjálfa