Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Side 72
230
Ágúst H. Bjarnason:
l IÐUNN
Nýja Suður Wales fram með frv. til laga á öndverðu
ári 1912 þess efnis að skipa þriggja manna nefnd til
þess að sjá um húsabyggingar þær, er ræddi um í
frv., og hafa lokið þeim á næstu 5 árum. En efni
frv. var það, að nefndinni skyldu fengnar í hendur
336 ekrur lands, er var 3j* mílu vegar frá miðbiki
Sydney-borgar, og skyldi bygður þar svonefndur
»garða-bær« (Garden Cityj eftir ágætustu fyrirmynd-
um.1 *) Húsin skyldu aðallega ætluð verkamönnum og
fjölskyldum þeirra og húsaleigan lág, enda skyldi
borgin ekki hafa neinn beinan hagnað af fyrirtækinu.
Húsin skyldu leigð til 7 ára í senn og húsaleigan
ekki reiknuð hærra en það, að hún gæti svarað 4°/o
af andvirði húss og lóðar, svo og virðingargjaldi og
viðhaldskostnaði, þannig að alt fyrirtækið væri borg-
að upp á 50 árum, borginni að koslnaðarlausu.
Byggingadeild stjórnarráðsins skyldi búa til alla upp-
drætti að húsunum; en verkfræðingadeild ríkisins
skyldi sjá um framkvæmdirnar og skyldi farið með
þetta sem hvert annað opinbert fyrirtæki, þannig að
ríkið tæki að öllu leyti verkið að sér. Múrsteinarnir
voru búnir til í múrsteinssmiðjum rikisins. Sömuleiðis
keypti ríkið nokkur trésmíðastæði, þar sem öll
trésmíðin var unnin. Steinnámur ríkisins lögðu til
grjót og steypuefni i götur og grunna; en gasbrenslan
lagði til gjall í gjallplötur og aðra steypu. Verkið var
hafið í júní 1912. Húsin eru bygð saman tvö og tvö
og eru mjög rúmgóð. Hvert hinna stærri húsa hefir
t. d. þrjú svefnherbergi, 7 X 6 al., 6 X 5^2 al., og
ð1/* X 5l/2 al. að stærð, eina setustofu 8 X 7 a^’
og auk þess eldhús, búr, baðherbergi, þvottahús,
vanhús og húsasvalir eða palla bæði fyrir framan og
aftan húsið. Þegar búið var að reisa nokkur hús,
var leigan ákveðin, 61,20 á mán. fyrir hin stærri
1) Sbr. ritg. próf. Guðm. Hannessonar i Árbók Háskólans 1915—16:
Um skipulag bæja.