Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1921, Side 6

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1921, Side 6
164 Gilbert Parker: IÐDNN en svo innilega heilnæmt og glatt á sumrum, og svo samræður foreldranna ýmist við varðeldinn eða á veiðiförutn, er hann lá i hengirólu milli tveggja trjáa eða í skutnum á valnabátnum, og þó um fram alt umönnun góðrar, ástríkrar móður, enda þótt hún væri nokkuð geðrík, — alt þetta hafði þroskað hann um aldur fram. Tímunum saman hafði liann á hverj- um degi oiðið að vera einn með fuglunum, ikorn- unum og öðrum dýrum, er flugu hringinn í kring um hann; en eitthvað af þefvísi þeirra og eðlisgreind hafði smogið líkama hans og heila, þannig að hann fann til margs þess, sein hann alls ekki gat gert sér ljósa grein fyrir. Hann sá, að hann hafði mælt föður sinn og það angraði hann. Nú datt honutn annað í hug: — Pabbi, lof mér að fá það. — Eitlhvað sviplíkt brosi var að reyna að brjótast fram í andlit veiðimannsins, er liann sneri sér að veggnum og tók ofan hvitt tófuskinn. Augnablik hélt hann því milli handa sér og horfði á það með vel- þóknun; því næst kom hann með það og fékk barn- inu það, og nú brauzt brosið yíir varir hans, er hann sá, hversu hið föla andlit hvarf á kaf í mjúk- an feldinn. — Er það ekki mjúkl? — sagði hann ósjálfrátt. — Bon! bon!'1') svaraði barnið á máli móður sinn- ar, sem var frönsk, en það voltaði þó fyrir Indíána- blóði í æðum hennar. Þeir sátu nú þarna báðir. Maðurinn hálf-laut niður yfir fletið og strauk feldinn ofur-iaust. Fæstir mundu hafa skilið í því, sem hefðu séð það, hvers vegna veiðimaðurinn og sonur hans, sem var ekki nema níu vetra, gátu verið svo hróðugir yfir svona litlu. fað má sjá aðdáunar-glampa í augum ungrar konu. 1) Gott! gott! = inndælt.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.