Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1921, Blaðsíða 73
IÐUNN
Trú og sannanir.
231
■var teiknað eftir þeitn og þeim breytt eins og þurfa
þótti. Og Eva C. eða hjálparmaður hennar — ef
nokkur hefir verið — valdi svo sem ekki af verri
endanum — tók báða forsetana, sem þá voru að
verða, Wilson Bandaríkjaforseta og Poincaré Frakk-
iandsforseta og breytti þeim hæfilega, svo að þeir
yrðu sem torkennilegastir.
Myndir þessar mæla sínu eigin máli. Til þess að
gera Wilson torkennilegan er málað á hann heljar
yfirskegg og límt fyrir annað augað. En drepi maður
litla fingri yfir skeggið, kemur líkingin í ljós. Svo
hefir »andanum« láðst að líma yfir Péturs-sporið í
höku forsetans, svo og slipsi það og kragalag, sem
hann bar á myndinni í Le Miroir 17. nóv. 1912.
Og sýnilega er myndin klípt út úr blaði.
Poincaré forseti er auðþektari, þótt hann hefði
auðvitað helzt þekst á nefinu, sem límt er svo ræki-
lega yfir; en þessi mynd af honum stóð 1 Le Miroir
21. apríl 1912 og hefir Eva brugðið henni upp fyrir
andlit sér.
Hvað segja menn nú um þessi og þvílík »holdgunar-
fyrirbrigði«? Er ekki von að ærlegir menn gerist
vantrúaðir og hristi höfuðið }rfir þessu, þegar þeir
komast á snoðir um annað eins? Og hvað finst hr.
E. H. K. um þann þekkingarauka, sem hann nú
hefir fengið á Evu C. = Mörthu B.? — Er það ég
eða hr. E. H. K., forseti »SáIarrannsóknarfélags ís-
lands«, sem stendur hér »höllum fæti«? Og ætli
sumum finnist ekki, að þekking hans á þessum
»afar-merkilegu manngervingum« sé — »merkilega
ónákvæm«?!
Ég get nú verið stuttorður um það, sem eftir er
af líkamlegu fyrirbrigðunum og kem nú að anda-
ljósmyndunum.