Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1921, Blaðsíða 65
IÐUNN
Trú og sannanir.
22S
þetta meö Bergólíu — systur Bien-Bóa — er tómur upp-
spuni (all luimbng). Við systurnar skulum loí'a ykkur að
sjá nokkuð skrílið*. Journau varð agndofa. En mig hafði
Martha B. þegar varað við, að festa trúnað á þessar hold-
ganir; þær ættu sér alls engan stað (— all these materiali-
salions weve non-existenl). Mig hafði nú lengi grunað þetta
og ég hafði haldið, að Bergólía mundi ekki láta sjá sig í
þetta sinn. Þegar hér var komið sögu, komu tvær yngri
systur Mörthu. En Ninon, sem húist var við þetta kvöld,
kom ekki.
Við fórum nú inn i setu-stofuna (the séance room) og
setlumst við kringlótt borð fyrir framan byrgið, sem ætlað
var miðlinum. Við vorum naumast seztir, fyr en Martha B.
enti það, sem hún var búin aö lofa. Hún stóð upp frá
borðinu og fór inn í byrgið og kom út úr því aftur með
þunt, hvitt sjal yfir höfði og herðum. Gekk hún fram og
aftur um liið litla lierbergi og sneyddi vandlega hjá, þar
sem birtan var meiri, og svaraði fyrst á frönsku nokkrum
spurningum, sem frú Noél beindi til hennar um Bien-Bóa,
en því næst fór hún eftir áskorun frú Noél að babla
einhverskonar hrognamál, sem liún sagði að væri Ilindúa-
mál.
Þessi litli skrípaleikur stóð hér um bil 20 mínútur. Hr.
og frú Noél, — en um einlægni þeirra hefi ég aldrei efast,—
trúðu því blint, að systir uppáhalds-anda þeirra væri þarna
komin. Og það var alveg árangurslaust að ætla að reyna
að koma vitinu fyrir þau. Allir, sem hafa nokkur kynni
af andatrúarmönnum, vita, að þetta er ekki til nokkurs
hlutar. . . . Auk þessa var Martha B. ekki neinn atvinnu-
miðill. líg hugsa líka, að »Bergólia« hafi aldrei gert nein-
um manni mein, jafnvel ekki hr. og frú Noél, því að löngu
voru þau farin að trúa á holdgunar-fyrirbrigði, áður en
»Bergólia« tók að sýna sig í okkar hcimi. . . .
Jafnvel hinn vantrúaði Tómas hefði nú ekki getað efast
lengur um, hvernig í öllu lá. Við Journau vorum ekki
lengur í neinum vafa. Og við vorum nú ekki viðstaddir
fleíri andabirtingar í Villa Garmen, þrátt fyrir margitrekuð
boð, sem við fengum um það eftir þetta. Og ég held, að
við höfum breytt réttilcga.