Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1921, Page 27

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1921, Page 27
IÐUNN Frá Vestur-íslendingum. 185 tínii til kominn, að é« gefi einhverja skýrslu um ferðina; og það hef ég lofað að gera á þessum fundi. Mér þykir verst, ef fundarnrenn vonast eftir einhverri skemtilegri ferðasögu. það sem ég ætla að segja ykkur verður mjög einliliða. Eg átti ekki nema eitt erindi vestur, og sinti lítið öðru. Það sem ég gerði mér mest far um að kynnast, var þjóðernis-barátta landa okkar, eða viðleitni þeirra til að vernda tungumál sitt og þjóðerni, varðveita sjálfa sig frá því að hverfa eins og dropi i það liaf af enskumælandi þjóðílokk- um, sem umkringir þá og vill gleypa þá í sig svo gersamlega, að þess sjáist engin merki, að þeir hafi. nokkuru sinni íslendingar verið. Til þess að vernda sig og börn sín frá slíkri glötun eru nú landar okkar að bindast sainlökum, og hafa myndað félag, sem þeir kalla Þjóðræknisfélag Vestur- íslendinga. Þelta iélag er korn-ungt enn þá. En þar er allmikill áhugi á ferðum, sem virðist fara vaxandi. Félagsmenn munu hafa verið nál. 1000, þegar ég fór frá Winnipeg í vor fyrir sumarmál. En þá var fé- lagið heldur ekki nema rúmlega ársgamalt, og liafðl ekki gert mikið að þvi að afla sér félaga. En nú stóð til í vor að gera gangskör að því. Og menn úr félagsstjórninni sögðu við mig, að þeir þyrðu að lofa því, að félagatalan skyldi tvöfaldast á þessu ári„ Arstillag hvers félagsmanns er 2 dalir, svo að félagið hefir þegar talsvert fé lil umráða. Félagið er í deildum, vili koma upp deild í hverri íslendingabygð, en hefir eina sambandsstjórn. í þeirri stjórn sitja 9 menn. Stærsta og atkvæðamesta félags- deildin er í Winnipeg. Hún hélt fund í hverri viku í vetur, og þangað var öllum Islendingum hoðið að koma. Hún hélt uppi kenslu í íslenzku mikinn hluta vetrarins; til þeirra kenslu-stunda var boðið öllum islenzkum börnum. Næsta vetur stendnr til að vinna enn kappsamlegar að slíkri kenslu. Þjóðræknisfélagið

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.