Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1921, Blaðsíða 58
216
A. H. B.:
IÐUNN
lesið af því tæi. En það var ekki auðhlaupið að þessu.
Alt var í uppnámi á írlandi og mér ráðið frá að
fara þangað. Og svo var hægar sagt en gert að kom-
ast inn á dr. Crawford. Hann hafði þverneitað Sálar-
rannsóknarfélaginu brezka um að taka nokkurn þátt
i þessum rannsóknum sínum, hafði meira segja ekki
leyft próf. Barrett, sem þó er spirilisti, að vera við-
staddur þessar tilraunir sínar ásamt dr. W. nema í
eitt skifti, í jólaleyíinu 1915, og aldrei síðan. Eg var
þó ekki vonlaus um að geta hitt dr. Crawford..
Honum hafði verið boðið í fyrirleslraferð til Ame-
ríku og gert ráð fyrir, að hann kæmi til Englands
áður. En hvað skeður? Þegar helzl var von á honum
til London, les ég það í Light, andatrúar-tímaritinu
enska, að dr. Crawford sé dáinn og er gefið í skyn,
að hann hafi drepið sig á eitri. (Sbr. Light, 7. ág.
1920).
Úr því svona fór, verð ég að lála mér nægja að
lýsa þeirri einu »setu« (séancej, þar sem próf. Barrett
var viðstaddur, og er bezt að gera það með orðum,
hans sjálfs:
»Högg komu brátt í ljós og svöruöu spurningum. Prjú
högg fyrir já, tvö fyrir efa, eitt fyrir uei. Skeyti komu og
með því að hafa hægt upp stafrofið og kom þá högg við
hinn rétta staf. Sum höggin virtust koma frá borðinu og
sum frá stöðum után við hringinn. Alt í einu kom hátt
högg sem svar við spurningu og var endurtekið með krafti.
Dr. W. bað þess, að það yrði enn hærra, og þá kom
bylmings högg, sem liktist sleggjuhöggi á steðja, svo að,
herbergið skalf. Eftir setuna rannsökuðum vlð fætur fund-
armanna og allir höfðu filtskó á fótunum nema einn, sem
hafði létta skó, og einginn þeirra hel'ði getað valdið þessum
höggum með fótunum.
Pá komu merkileg hljóð, sem líklust því helzt, að verið
væri að saga og bora í tré, og eins og verið væri að kasta
bolta, fyrst litlum bolta, er skall upp og niður, og síöan
að því er virtist stærri bolta, sem líka skall upp og niður;,