Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1921, Page 62

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1921, Page 62
220 Á. H. B.: IÐUNN ekkert frekar fyrir um Evu C.; en síðar komst þa5- upp, að þetta var sama stúlkan, og þá urðu svik hennar einnig við síðari tilraunirnar augljós. En ég skal nú segja ofurlítið nánar af miðilsferti stúlku þessarar, og styðst ég þar aðallega við ritgerð Helen de G. Verrall: The History of Marthe Béraud (»Eva C.«) í Proceedings, Vol. XXVII, bls. 333 o. s- Um aldamótin 1900 bjuggu hjónin Noel hershötð- ingi og kona hans í Villa Carmen í Algier. Voru þau ákafir spiritistar, einkum konan, og liöfðu því tíðar »setur« (scances) heima hjá sér bæði með atvinnu-miðlum og öðrum. Á heimilið kom ung stúllia, Marthe Béraud, og trúlofaðist hún síðar syni þeirra hjóna, Maurice. Fékk frúin hana brátt til að taka þátt í tilraununum og gerast miðill. En sögurnar af setum þessum voru sendar í spirilisk blöð og tíma- rit. í ágúst 1905 fór próf. Richet til Algier, til þess að athuga þetta, og birti athuganir sínar á franska spiritista-ritinu Annales des sciences psychiqaes 1905,. bls. 649 o. s. Fyrirbrigðin, sem bar fyrir próf. Richet, vom svonefndar »ho!dganir« anda nokkurra. Bar þar einna mest á Araba-höfðingja einum, er nefndi sig Bien- Bóa og systur hans, Bergólíu. Sýndu þau ýmis merkfr þess, að þetta væru lifandi verur, og úrlausnarefni Richet’s var því aðallega þetta: að komast á snoðir um, hvort verur þessar mundu vera leiknar af Mörthu eða einhverjum öðrum hjálparmanni hennar. En niðurstaða sú, sem Richet komst að, var fólgin í þessu tvennu: 1., Á fundum þeim, sam hann var á, var girt fyrir það, að nokkur hjálp kæmi ulan að; væru þvir svik i tafli, hlytu þau að stafa frá Mörthu B. og þá, ef svo væri, að vera gerð að yfirlögðu ráði. 2., En fyrirbrigðin væru því nær áreiðanlega ósvikin,

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.