Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1926, Side 12

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1926, Side 12
174 ]akob Kristinsson: IÐUNN höfðum okkar gnæfði bjargið við sfjörnubjarian himinn og slúfti fram eins og jölunvaxinn turn, sem kominn er að hruni. Loksins komum við til Anacapri. Þýzkur, uppgjafa prófessor bjó í Villa Rispóli. En megnið af húsakynnunum stóð þó autt. Okkur var vísað til herbergja í auða endanum á húsinu. Var herbergi vinkonu okkar undir því, er við hjónin vorum í. Ferðin hafði verið þreytandi, og við urðum fegin að ganga til hvílu. En okkur varð ekki svefnsamt. Það var eitthvað í herberginu, sem bannaði svefnfrið, hvernig sem við reyndum að blunda. Við höfðum á tilfinning- unni, að eitthvað óhreint og viðbjóðslegt væri á sveimi umhverfis okkur, og að rúmin, sem við lágum í væru ötuð í einhverjum óþverra. Við kveyktum ljós og skoð- uðum rúm og rúmföt nákvæmlega. En út á það var ekkert að setja. Þegar skamt lifði nætur seig loks í brjóstið á mér. Þótti mér þá maður, heldur ófrýnn, vaða að rúminu og grípa fyrir kverkar mér. Fann eg að hann þóttist eiga her húsum að ráða og vildi okkur, fyrir hvern mun, á brott. Hrökk eg upp við þetta með andfælum, all þrek- aður. Kona mín gat aldrei fest blund, alla nóttina. Urð- um við fegin þegar ljómaði af degi. Svona leið nú fyrsta nóttin í hinu fyrirheitna landi. Þótti okkur ekki byrlega blása, með Paradísarsæluna, sem okkur hafði verið heitið. Maria Cumleigh var snemma á fótum, og heldur úrill er hún kom inn til okkar um morguninn. Hún hafði heldur ekki sofnað blund. Vinkona okkar hélt aftur til Neapel, en við hjónin dvöldum viku í þessu húsi. Og allan tímann, sem við vorum innan dyra leið okkur illa, en verst þó á næturn-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.