Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1926, Síða 13
IDUNN
Frá Capri.
175
ar. Að vísu vorum við ekki eins svefnlaus, og fyrstu
nóftina. En við nutum aldrei endurnærandi svefns og
vorum alt af að hrökkva upp, frá því við festum blund
og þangað til dagur rann. Og ekki tókst okkur nokk-
urntíma að losna við tilfinninguna um það, að eitthvað
viðbjóðslegt væri þarna inni.
Herbergið var þó gott, húsið fallegt og stóð á yndis-
Capri, frá auslurenda eyjarinnar.
legum stað. En alt kom það fyrir eitt: Við gátum varla
haldist þar við. Og þegar okkur tókst loks, að fá hús-
næði annarstaðar, kvoddum við Villa Rispóli í skyndi.
Það skifti um þegar í stað. I nýja húsinu sváfum við
eins og selir. Og eftir það fórum við fyrsj að geta notið,
til fulls, fegurðarinnar á Capri.
Hið eina, sem að okkur amaði var kuldi. Varð hann
til mikilla óþæginda, stundum. Aldrei snjóaði þó, meðan
við vorum í Capri, og ekki vissum við til að frost væri,
nema á nóttum. Kuldinn hefði því ekki sakað mikið, ef
sæmileg hitunartæki hefðu verið í húsum. En svo var