Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1926, Blaðsíða 58
220
Sir Oliver Lodge:
IDUNN
það, sem enn verður að telja til hins óþekta og leyndar-
dómsfulla, með því að gera tilraun til að rannsaka öll
þau fyrirbrigði, sem oss er unt að fást við, og reyna að
ganga úr skugga um lögmálin, sem þeim ráða, eftir því
sem unt er.
Það er þess vegna hætt við því, að viðfangsefni þetta
lendi milli tveggja stórvelda mannfélagsins, vísindanna
og kirkjunnar. Það er enn ekki viðurkent sem ein
grein rétttrúnaðar-vísindanna; né heldur er niðurstöðu
rannsóknanna veitt viðtaka af lærisveinum rétttrúnaðar-
trúarbragðanna. Einstaklingar hafa gert sér ljóst, hvílíka
von það felur í sér og að því hefir orðið nokkuð ágengt,
og margir hafa haft samúð með því, er það keppir að,
en meiri hluti manna vill hvergi nærri koma. Tiltölulega
fáir hafa því enn lagt rækt við það; og það er málefn-
inu bæði tjón og ávinningur, að það skortir opinbera
viðurkenningu og löghelgað skipulag. Óbreyttir alþýðu-
menn hafa tekið það upp, og þeim kann að skjátlast
við og við í meðferð þess. En ávalt verður þessi reynd-
in: að sumt, sem er hulið spekingum og hyggindamönn-
um, er opinberað smælingjum.
Ef vér erum góðgjarnir, verðum vér að gera ráð fyrir,
að allir alvörumenn vilji leita sannleikans, að þá langi
ekki til að verða fyrir blekking, og að þeir telji það
skyldu sína að reynast trúir þeim sannindum, sem þeir
hafa getað aflað sér eða kunna að hafa verið þeim
opinberuð. Vér megum ekki gera ráð fyrir, að nokkur
flokkur alvörumanna vilji af ásettu ráði vera blindur
fyrir nokkurri tegund sannleikans, hvort sem um er að
ræða sannindi guðfræðinnar eða sannindi vísindanna
eða þá reynslu, sem menn skynja óglögt og enn telst
hvorki fyllilega til guðfræði né vísinda. En þó að
hvorki sé um vísvitandi blindni að ræða né um fjand-