Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1926, Side 40
202
Einar Benediktsson:
IÐUNN
ara stórra forfalla nú um tíma verið forsómað (sic) fyrir
margar vorar stórnauðsynjar og Konglegt embætti —«')
Eins og alkunnugt er höfum vjer ekki óyggjandi vissu,
í heild, um nákvæma orðun Gamla Sáttmála, sem gjörð-
ist hjer 1262, en enginn mun nú þó leyfa sér að ve-
fengja samningseðli þeirrar gjörðar milli tveggja aðila
máls. Og mun nokkrum þá fært að draga það í efa,
að hjer sje algild skjalsönnun um alveg hliðstæðan
samning, að því er lýtur að nýlendunni? Einnig sjest
það berlega á öllu orðalagi brjefsins að konungur ótt-
ast að hann kunni að hafa fyrirgjört yfirráðum á Græn-
landi við þessi vanhöld, enda gjörði hann þegar út eitt
skip vestur, sem að vísu komst þó ekki fram. Hve al-
varlega konungur hefur litið á málið sjest og ennfremur
á því, að hann gjörir 3 skip út til Grænlands næsta ár,
sem augljóslega er ætlað til að fylla hina áskildu tölu,
4 alls bæði árin.
í þessari stuttu yfirlitsgrein verður ekki farið frekar
út í stjórnskipulega nje ríkisrjettarlega merking sátt-
málans fyrir Grænland. ]eg vildi aðeins benda hér á
óyggjandi sögusönnun þess, að hinn erlendi konungur
hafði alveg sameiginlega valdstöðu bæði yfir móður-
landinu og nýlendunni. Og um það geta þeir einir haft
nokkurn efa, er gleyma því að hjer er að ræða um
stjórnarskipun, sem vantar almennt framkvæmdarvald.
Þeir sem hafa fengist við það, að athuga stjórnarsögu
Grænlands, án hliðsjónar á þessu alveg einstæða fyrir-
komulagi hjá oss, til forna, hlutu auðvitað að villast úr
vegi.1 2) Samband landanna gat ekki birst á þann hátt,
1) Grl. H. M. III. bls. 202—3.
2) Sbr. B. M. Ólsen: Um „Upphaf konungsvaldsins á íslandi“,
Andvari, Rvk. 1908, bls. 18. „Hákon gamli átti mestan þátt í því