Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1926, Page 68
230
Sir Oliver Lodge:
IÐUNN
En nú geta menn spurt: Eru allir spíritistar þeirrar
skoðunar? Aðhyllast þeir allir þá skoðun, að hinn Eilífi
Kristur hafi birzt í Jesú frá Nazaret? Að líkindum ekki,
þó að meiri hluti þeirra geri það. Eg hefi þekt fáeina,
sem hafa verið óvinveittir kristindóminum, eða öllu heldur
einhverri skrípamynd af kristindómi, sem þeir hugðu, að
kirkjudeildirnar héldi fram. Vitanlega kunna einhverjir
þeir að vera til, sem skjátlast stórlega í þessum efnum,
en um flesta af þeim spíritistum, sem ekki sækja guðs-
þjónustur kirkjunnar, en leitast við að koma á stofn eigin
trúarbrögðum, má það segja, að þeir hafa verið fældir
burt, ekki með hinum sönnu meginatriðum kristindóms-
ins, heldur með kirkjuvenjum og trúarkenningum, sem
hlaðið hefir verið utan á kristindóminn, og með ýmsu
fyrirkomulagi kirkjumálanna. Eg hygg þeim farist óvitur-
lega; ég hygg, að alt skipulag megi nota til góðs, og að
galla sérhverrar mannlegrar stofnunar eigi að bæta, unz
gallarnir hverfa, en ekki að varpa öllu frá sér sem
gagnslausu. Kirkjan er mikilsverð stofnun; hún er máttugt
vopn til þess að sigra hið illa og reisa og festa hið
góða. Hún stefnir vissulega að því, að gróðursetja guðs
ríki á jörðu. Þegar hún er að vinna að þessu markmiði
sínu, skjátlast henni stundum. Hún hefir reynst að vera
blind fyrir mörgum andlegum veruleika; hún notar ekki
öll þau náðarmeðul, sem nú er völ á. En starfsmönnum
hennar er dreift um landið þvert og endilangt; þeim er
sýnd virðing og fólk hlustar á þá með nokkurri athygli;
en þegar menn finna, að þeir hafa lifandi sannleika fram
að flytja, þá flykkist fólkið að þeim til þess að hlýða á þá.
Nú á dögum krefjast menn áreiðanlega sannleiks og
raunveruleika. Fólk vill ekki vera algerlega fáfrótt um
eilífðarmálin eða ófrætt um örlög mannanna. En ef alt á
að vera komið undir innblæstri liðinna tíma, ef enginn