Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1926, Side 69

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1926, Side 69
IÐUNN Andahvggjan og trúarbrögöin. 231 lifandi andi er starfandi nú á dögum, ef innblæstrinum er með öllu lokið og sannleikann verður að grafa upp úr gömlum skjölum, og öllum öðrum leiðum er lokað, þá mun fjöldi manns hverfa frá kirkjunni, sumir til efnishyggjunnar, sumir til andahyggjunnar (spíritismans). »Hungruð mænir hjörðin, en hlýtur ekkert fóður*. Hvernig verður bót á þessu ráðin? Sérhver einstak- lingur verður að ákveða, hvaða skref unt sé að stíga til framkvæmda í þessa átt nú þegar, hversu stutt sem það er. Eitthvað ætti að gera og eitthvað verður gert, ef ekki af þessari kynslóð, þá af hinni næstu. Það eru ekki hneykslanirnar einar, sem eru óumflýjanlegar, heldur og blessanirnar, þegar til lengdar lætur. Það er óumflýjan- legt, að blessanirnar komi, og vel sé þeim, sem verður þess valdandi, að þær koma. Það er eftirtektarvert tákn tímanna, og veit á gott, að margir leita nú meiri þekk- ingar, jafnvel á óljósum leiðum, sem menn hafa ýmugust á. Það er ekki viturlegt, að dæma um þessi efni fyrir- fram, að órannsökuðu máli. Málefnið er komið svo langt, að það verður að afsanna það, ef menn eiga ekki að taka það gilt. Oteljandi fjöldi syrgjandi manna hefir þeg- ar hlotið hjálp; mönnum hefir veizt mikil gleði beggja wegin tjaldsins. Því að til kvalar skilnaðarins finna ekki þeir einir, sem eru hérna megin; þeim, sem yfir um eru komnir, verður kvölin enn sárari, er þeir horfa upp á vonlausa sorg eða grátlega örvænting. Menn ættu ekki að hrópa svo til himins og ekki láta svo ákafa tilfinn- ing óbætanlegs missis fá vald yfir sér. Elskan hefir brú- að gjána. Kenningar spíritistanna annars vegar og svo hitt, að við og við hefir mönnum verið gefinn kostur á persónu- legu sambandi — þetta hvorttveggja hefir veitt mörgum þúsundum manna huggun. Enginn reynir að neita því,

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.