Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1926, Qupperneq 70
232 Sir Oliver Lodge: Andahyggjan og trúarbrögðin. IÐUNN
að ýmislegt megi út á þetta málefni setja og að því
finna, og að ýmis konar trugirni og hjátrú sé við það
loðandi. En er ekki óumflýjanlegt, að svo fari um allar
víðgengar hreyfingar? Hreyfingin þarfnast leiðsögu;
henni er þörf á heilbrigðum hugsunarhætti, Iotningu,
hæversku og hleypidómaleysi; hún ætti ekki að leitast
við að skera sjálfa sig frá hinum tilkomumiklu erfikenn-
ingum og helgisiðum liðinna tíma. Vér ættum ekki held-
ur að reyna að takmarka oss við þá eina. Staðreyndirn-
ar, sem spíritisminn er reistur á, ætti að nota í þjón-
ustu trúarbragðanna.
Hvernig gera á þetta vel og viturlega, veit ég ekki.
En vér erum leiddir og oss er hjálpað. Vizka mun veit-
ast þeim, sem reyna, en þeim mun um hana synjað,
sem hvergi vilja nærri koma. Tilvera andlegs heims hefir
verið sönnuð með aðferðum vísindanna, eða hún er í
þann veginn að sannast, og hún er meginundirstaða
allra trúarbragða. Eg er einn þeirra manna, sem hlotið
hafa fræðslu um það, að mannleg tilvera, eins og vér
þekkjum hana, er aðeins hluti úr heildinni. Samfélag
heilagra er raunverulegt, já syndara líka. Syndararnir
voru ekki greindir frá á dögum hans, sem talaði eins og
sá er vald hefir. Hann var þannig við þá, að þeir urðu
sumir heilagir menn. Að leita að hinu týnda og frelsa
það, var engin bráðabirgða-tilraun, heldur stöðug bless-
unar-starfsemi, sem vér getum einnig orðið hluttakandi
í. Sálir slokkna ekki út; framfarir eru óendanlegar. Menn
trúa nú ekki eingöngu á veruleik gagnkvæmrar hjálpar,
bæði hér og hinumegin, og á áhrif bænarinnar, heldur
hafa menn nú beina reynslu fyrir þessu. Þekkingin er
að nokkru leyti að leggja undir sig svið trúarinnar, en
svið trúarinnar er óendanlegt. Og þekkingin vex áreið-
anlega meir og meir, þó að hún sé mjög takmörkuð.
Geisli í myrkri — lofið honum að aukast.
Haraldur Níelsson
þyddi.