Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1954, Síða 32

Kirkjuritið - 01.10.1954, Síða 32
390 KIRKJURITIÐ skipulegar, til þess að þær féllu eyra áheyrenda hans stundum. Hann var ekki formfastur í máli sínu alla jafna, þegar um stólræður var að ræða, eða lengra mál, en hann naut sín oft vel í stuttum borðræðum. Man ég í því sambandi rómaða slíka ræðu, er hann hélt á Þing- völlum ekki alls fyrir löngu og mælti fyrir minni Reykja- víkur. Þannig var um ræðu, er hann flutti hér á fsafirði við forsetakomuna 1945 og ég hlustaði á. Hann skorti ekki leiftrandi flug stundum í máli sínu og margt snjallt draup úr penna hans, en hann varð torræður stundum, svo að ekki hentaði öllum að fylgja honum eftir eða skilja, hver meining hans var. Hann hefði því getað sagt: Mitt er að yrkja, en ykkar að skilja. En þegar getuna vantar að skilja, hættir mörgum við að kenna hinum aðilanum um. Því satt er það, sem mælt er, að „árinni kennir illur ræð- ari“. Svo eldheitur kennimaður sem séra Jónmundur var, sat hann sjaldan auðum höndum í prestsstarfi sínu. Hann stundaði kennimannsstarfið af miklum áhuga og dugnaði. Hann ferðaðist um hið víðlenda og torfæra prestakall sitt og sótti sóknarbörn sín heim, sem illt áttu með að sækja til hans kirkju, og flutti þeim orðið. Var hann óspar á að flytja heimilisguðsþjónustur eða á annan hátt að tengja fólkið kirkjunni og Guðs orði, og jafnan var hann reiðubúinn til prestsþjónustu, næstum því hvernig sem á stóð, og sást þá lítt fyrir um kostnað og erfiði. Sögu sagði hann mér einu sinni um ákafa sinn að gegna kallinu, að skíra barn óralangt frá heimili sínu. Að lokinni messu sunnudag einn heima á Stað, fékk einn kirkjugesta hans honum bréf, sem skrifað var viku áður, þar sem hann er beðinn að koma norður í Reykjafjörð áðurnefnd- an sunnudag og skíra þar barn. Að sjálfsögðu var of seint að fara þá til að koma í tæka tíð, en hann fer samt þegar af stað og kemur í Reykjafjörð morguninn eftir um fótaferðartíma og hafði verið alla nóttina á ferðinni. Að geyma það til næsta dags, sem gera átti í dag, þoldi hann ekki og gerði jafnan sitt bezta í því tilliti í starfi

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.