Kirkjuritið - 01.10.1954, Blaðsíða 58
Frá kirkjukór Sauðárkróks.
Enn sem fyrr hefir kirkjukór vor reynzt framsækinn og
ferðdjarfur. Um skeið hafði hann undirhúið söngför austur á
bóginn. Og laugardaginn 15. maí tímanlega var safnazt í
kirkjuna. Sálmur var sunginn og bæn flutt af söngstjóra. Þar
með var förin hafin í tveim stórum bílum, sem leið liggur
um Skagafjarðarhérað og öxnadalsheiði. Eftir stutta dvöl a
Akureyri var haldið nær viðstöðulaust til Húsavíkur. Sungið
var þar í kirkjunni um kvöldið við góða aðsókn og ágætar
undirtektir. Að lokum söng kórinn og kirkjukór Húsavíkur
tvö lög sameiginlega undir stjórn söngstjóra sinna, Eyþórs
Stefánssonar og séra Friðriks Á. Friðrikssonar. Húsvíkingar
sýndu kórnum frábæra gestrisni, hlýleik og bróðurhug. Var
gist á Húsavík um nóttina. En árdegis næsta dag var haldið
aftur af stað vestur á um Laxárvirkjun og Reykjadal í dýrð-
legu veðri að Laugum. Neðarlega í dalnum kom Páll H. Jóns-
son kennari til móts við flokkinn. Var hann mjög kærkominn
og nytsamur leiðsögumaður inn dalinn. Á þeirri leið var
flokknum skipt í smærri hópa á bæina til hádegisverðar. Til
Lauga var komið upp úr nóni. Sungið var þar um kl. 4 við
ágæta aðsókn og kórnum tekið forkunnarvel og áheyrendum.
Eftir sönginn var kórnum boðið til kaffidrykkju í skólahúsinu.
Að því stóðu aðallega Kirkjukór Einarsstaðasóknar og Karla-
kór Reykdæla. Fluttu þar ræður Jón Haraldsson bóndi á Ein-
arsstöðum, söngstjórarnir Sigfús Hallgrímsson í Vogum og
Páll H. Jónsson á Laugum. En Jónas Helgason á Grænavatm
stjórnaði sameiginlegum söng undir borðum. Formaður Sauð-
árkrókskórs flutti Reykdælum þakkir og mælti fyrir minm
sveitar og sýslu. — Að lokum flutti söngstjórinn Eyþór Stefáns-
son þakkir þingeyskum söngfélögum fyrir höfðinglegar og
ógleymanlegar móttökur. — Hafin var svo heimför upp úr
miðaftni. Nokkur dvöl á Akureyri og komið lieim til Sauðár-
króks á öndverðri nóttu.
I kórnum eru nú um 40 manns. — Einsöngvarar eru Snæ-
björg Snæbjörnsdóttir, Gunnhildur Magnúsdóttir, Svavar D-
Þorvaldsson, Sig. P. Jónsson. — Frú Sigríður Auðuns annaðist
píanó-undirleik. J. Þ. Bj.