Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1964, Page 41

Kirkjuritið - 01.10.1964, Page 41
KIUKJURITIÐ 375 aðrir. Auk þess má frá Kaupmannahöfn liafa nokkur tengsl við „nýlendur“ Islendinga í öðrum borgum Norðurlanda. Það er orðið langt síðan ég fór að láta mig dreyma um, að íslenzkur prestur yrði ráðinn lil þjónustu meðal Islendinga í Danmörku, með búsetu í Kaupmannahöfn og til fyrirgreiðslu annars staðar á Norðurlöndum eftir því sem við mætti koma. Það er fullur aldarfjórðungur síðan ég tók ástfóstri við þá hugmynd. Hafði ég þá líka í huga, livað það gæti verið æski- legt, að guðfræðingar eða prestar, sem væru vel fallnir til slíks starfs gætu jafnframt fengið tækifæri til þess að auka nám sitt með því að lilýða fyrirlestrum við Kaupmannahafnarhá- skóla, kynna sér að öðru leyti kirkjulega starfsemi frændþjóð- arinnar og vinna að fræðilegum verkefnum. Hafði ég því liugs- að mér að heppilegast yrði að menn væru ráðnir í þetta starf til tiltölulega fárra ára. Ég hafði nokkrum sinnum fært þetta mál í tal, bæði við danska menn og íslenzka. I júní í fyrra, þegar ég fór til Kaup- niannahafnar, ræddi ég það allýtarlega, m. a. við ambassador Islands. Fóru síðan hréf okkar í milli um málið og veitti hann hugmyndinni eindreginn stuðning. Lýsti liann því álili sínu, að það væri mjög tímabært að fá prestlærðan Islending til Kaupmannahafnar, er annaðist prestleg störf fyrir Islendinga húsetta þar, messugerðir og aðra þjónustu. Benti Iiann á í því sambandi, að við sendiráð nágrannaþjóðanna eru starfandi l'restar og lagði til, að svipað fyrirkomulag yrði tekið upp af vorri liálfu. A grundvelli þessara bréfaskipta og annarra atliugana tók eg svo málið formlega upp við kirkjumálaráðuneytið með þeim árangri, að ráðuneytið heimilaði mér að ráða prest til starfa í Kaupmannahöfn og var séra Jónas Gíslason til þess ráðinn frá 1. júlí þ. á. að telja. Ég hef farið þessum orðum um aðdraganda þessa máls til þess að gera það ljóst, ef þess kynni að vera þörf, að þetta cnibætti er ekki til komið sem nein skyndiráðstöfun af annar- legu tilefni. Málið var undirhúið án þess að neinn sérstakur maður væri liafður í liuga og ég á uppástunguna að því, hver var til starfsins ráðinn. Það er rétt að taka þetta fram vegna tilefnis, sem að vísu er ómerkilegt.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.