Kirkjuritið - 01.10.1964, Síða 43
KlllKJlllUTIÐ 377
um og söfnuðum landsins og bið þeim allrar farsældar og Guðs
umsjár.
Kirkjan hefur nú 123 prestsembætti, auk þess einn djákna.
Allmörg eru embætti þessi þó óskipuð, eins og kunnugt er.
Þau prestaköll, sem eins og stendur er þjónað af nágranna-
prestum, eru þessi: Hof í Yopnafirði, Hof í Öræfum, Breiða-
bólstaður á Skógaströnd, Flatey á Breiðafirði, Brjánslækur,
Sauðlauksdalur, Hrafnseyri, Núpur í Dýrafirði — um það kall
barst engin umsókn —■ Staður í Grunnavík, sem að vísu er
tæplega teljandi með, en þó enn prestakall að lögum, Árnes
á Ströndum, Breiðabólstaður í Yesturliópi. Þá er embætti æsku-
lýðsfulltrúa enn óskipað. Hefur séra Ólafur Skúlason gegnt
því ásamt prestsstarfi sínu. Um nokkur þessara prestakalla, sem
uefnd voru, er það staðreynd, að þeim hefur um langan ald-
ur baldizt illa á prestuin og eru orsakir næsta augljósar: Stað-
trnir niðurníddir, sumir í reyndinni koninir undan kirkjunni,
þótt svo sé ekki á pappírnum, og sums staðar er fólksfæðin
orðin slík, að jafnvel liorfir til auðnar. Verður ekki lijá því
komizt til lengdar að taka skipan þessara prestakalla til end-
urskoðunar. Hitt er mér algerl principmál, að fjölgun presta
í þéttbýli verði ekki á kostnað strjálbýlisins. Það er sjónarmið,
sem kirkjan getur aldrei fallizt á, að starfsaðstaða liennar þurfi
ekki að fylgja þróun tímanna, m. a. að því leyti, að þjóðkirkja
ort vaxandi þjóðar þurfi ekki fjölgun fastra starfsmanna. Hafa
°g stjórnarvöldin sýnt þessu fullan skilning, eins og fram kem-
ur af þeirri aukningu starfsmanna, sem orðið liefur á liðnu ári.
En fyrirsjáanlegt er, að liér verður ekki unnt að nema staðar.
í Reykjavíkurprófastsdæmi eru nú, eins og áður segir, 3 presta-
Eöll, sem þegar eru með reglugerð afmörkuð og lögfest, en
bíða eftir því, að áætlaður fólksfjöldi nái til skildu marki. Nii
er verið að skipuleggja stórt borgarabverfi fyrir austan Elliða-
ár, þar sem fyrirsjáanlega verður að stofna nýtt prestakall
innan fárra ára. Það svæði tillieyrir raunar Kjalarnessprófasts-
dæmi, þar sem það liggur undir Mosfellsprestakall. Þá þarf
að skipta Kópavogi innan tíðar, svo og Garðaprestakalli eða
Hafnarfirði, ennfremur Keflavík — liér er aðeins miðað við
sEýr ákvæði gildandi laga um mannfjölda í prestaköllum.