Jörð - 01.04.1941, Qupperneq 92
ur liinn nýi leikari, Lárus Pálsson, og fer alveg prýði-
lega með hlutverk þjónsins. Þess verður þó að geta í þessu
sambandi, að áður fór Haraldur Björnsson með þetta hlut-
verk, sem var eitt hinna fáu hlutverka, er hann liefir
ráðið við, og hann fór alveg prýðiléga með það. Meðferð
hans á þvi var engu síðri en meðferð Lárusar, og þó að
því leyti fremri, að mér fannst hinn dulræni, drauga-
légi hlær yfir persónunni vera fullt eins heppilegur hjá
Haraldi.
Loks er að geta óperettunnar „Nitouche“ eftir Flori-
mond Ronger, kallaðan Hervé. Um nokkurra ára skeið
hefir Tónlislarskólinn sýnt hér óperetlur, og hefir almenn-
ingur tekið þeim prýðilega, og mun hetur en ])ví, sem
Leikfélagið hefir sýnt. Að þessu sinni liefir orðið sam-
vinna milli Tónlistarskólans og Leikfélagsins, og láti Guð
gott á vita. Tónsmiðurinn, — þvi tónskáld er naumast
hægt að kalla hann, — var upp á sitt hezta um miðja
siðustu öld, og var hann ekki i tölu hinna stóru spámanna.
Hann samdi reiðinnar ósköp af söngleikjum og óperett-
um, og samdi sjálfur textana undir, en af öllum þeim
grúa lifir ekki nema „Nitouclie“. Það er ekki gott að segja
á hverju hún lifir, því listgildi laganna er ekki mikið. Þau
hafa þó þann kost, að þau eru ismeygileg, þau eiga skín-
andi vel við textana, og skapa alveg einkennilegan hlæ,
sem er dæmalaust þægilegur. Óperettu þessari liefir því
um gjörvallan heim verið fagnað, og er fagnað enn. Menn
byltast um af hlátri yfir efninu og læra lögin "og raula þau.
Ég hefi séð „Nitouche“ ákaflega oft, en aldrei í þessum
útgangi fyrri en núna. Ég á við það, að inn i hana hefir
verið skotið nokkrum lögum eftir Offenhach og einhverju
fleiru, en lög Offenhaclis stinga mjög svo í stúf við lög
Piongers, — sem er persónan Cölestín-Flórídór, því hann
var líka óperettusmiður og kirkjuorganisti. Mér finnst
þessi innskot frekar spilla en bæta. Þá þykir mér nokk-
uð fyrir því, að einu bezta laginu, -— caporal Loriot syngur
það — skuli vera sleppt. Loks hefir verið hætt inn í leik-
inn dönsum, sem bæði koma þar eins og álfur úr hól, og
90 JÖR»