Jörð - 01.04.1941, Qupperneq 129
aðstöðu íslands og möguleika, fi'amtíS landsins og stjórn-
arliáttu, meSan á þessum hildarleik stendur og eftir hann.
| ^ AÐ, SEM ER AÐ GERAST, er í stuttu máli þetta:
Með styrjöld þeirri, sem nú hefir hrotizt út, er
verið að gera út um yfirráðin yfir heiminum, og ekki
nóg með það, heldur einnig i hvaða stjórnarfarslegri
mynd og á grundvelli hverrar menningar og lífsskoðun-
ar þau yfirráð eiga að verða byggð. í þessum hildarleik
eru tveir höfuðaðiljar þegar komnir fram á sjónarsvið-
ið, Bretaveldi annars vegar og liið nazistiska Þýzkaland
hins vegar. Þýzkaland er einmitt þessa dagana að hrjóta
undir ok sitt svo að segja siðustu sjálfstæðu þjóðirnar í
Evrópu: Júgóslavíu og Grikkland. Italía er þegar orðin
raunveruleg hjálenda Þýzkalands, og án tillits til þess,
hvernig styrjöldinni á Ballcan lýkur, er Þýzkaland nú í
-svipinn óumdeildur drottnari á meginlandi Evrópu.
Á móti þessum gífurlegu yfirráðum yfir náttúrugæð-
um og mannafla, sem rekin eru með fullkominni og lilifð-
urlausri kúgun, hefir Bretland því að tefla fram, að það
er að minnsta kosti jafn óumdeildur drottnari j'fir heims-
höfunum eins og Þýzkaland yfir meginlandi álfunnair.
Á hak við Bretland standa og samveldislönd þess og
Bandariki Norður-Ameríku, og er ekki annað sýnna, en
að hin síðasttöldu verði þegar minnst vonum varir yfir-
lýstur stjTjaldaraðili.
I austurálfu heims vinnur Japan að sömu markmiðum
'eins og Þýzkaland í Evrópu: fullkominni undirokun
hinna austrænu þjóða, svo vítt sem við verður komið,
undir japanskt auðvald og yfirdrottnun. Með þessu er
beinlínis vegið á hendur Bretlandi og Bandaríkjunum á
avæðum viðskipta og annara hagsmuna, auk þess sem
•Tapan vinnur ásamt Þýzkalandi og Ítalíu skijiulega að
því að því að brjóta niður þann stjórnarfars- og menn-
mgargrundvöll, sem brezkar og norður-amerískar félags-
hugmyndir og stjórnarhæltir hvíla á.
I þessari haráttu, sem þegar spennir eldgreipum sín-
JÖRÐ \21