Eimreiðin - 01.04.1932, Page 60
180
KOLFINNA
EIMREIÐIN
komi ekki dúr á auga alla nóttina. Hjá henni er ekkert til,
sem heitir að sofa út eða hvíla sig.
Og Kolfinna vann. Hún saumaði milli þess sem hún eldaði
matinn, gerði búsverkin og sinti litla drengnum sínum.
var sjaldan ósamlyndi á heimilinu, en gleðin hafði aldrei
komið þar. Halldór var þó sólargeisli í þessu myrkri. Hann
var fallegur og efnilegur. Kolfinna reyndi líka að hugsa eins
vel um hann og tími hennar og kraftar leyfðu. Oft svalt hun
til þess að geta keypt handa honum mjólk og mat. Fyr skyláj
hún deyja en hún léti drenginn sinn vanta nokkuð. Hún átti
stundum erfitt með að sitja við saumana, þegar Halldór ln
grét í vöggunni, og hefði hún þá ekki getað óskað sér neinnar
sælu æðri en þeirrar að fá að verja öllum tíma sínum fl
þess að hugsa um drenginn sinn.
— Árin liðu. Halldór hljóp um herbergin, hló og Sre*'
ærslaðist og lék sér, og hann klappaði pabba og mömmu-
Kolfinnu fanst vera farið að rofa svolítið til. Þegar hún horfð1
á Halldór Ieika sér á gólfinu, lagði hún stundum frá ser
saumana og tók hann í kjöltu sína. Hún horfði í þessi hyrU’
saklausu augu, og vonirnar vöknuðu í brjósti hennar. Kannsk®
hafði forsjónin gefið henni hann til þess að bæta henni a
hitt. Ef til vill yrði hún svo lánsöm, að hann yrði reglusamur
og duglegur. Og hver vissi nema faðir hans sæi þá loksm®
að sér og hætti að drekka. — Það færðist bros yfir anC*1
hennar. Gat það verið, að bænir hennar yrðu heyrðar °S
þau ættu öll eftir að lifa farsælu lífi á björtu og falleSu
heimili? ._
En svo kom haustið, þegar Vilhjálmur lenti í orðakasti v>
verkstjórann og var sagt upp vinnunni. Kolfinna vissi ósköp
vel, hversvegna honum var sagt upp. Allir í þorpinu vlSSU
það. Það stoðaði lífið fyrir Kolfinnu að Ijúga því, að hann
væri veikur. Menn vissu ósköp vel, hverskonar veikindi Pa
voru. Þegar þetta þótti keyra úr hófi, fékk Vilhjálmur áminn
ingu. Það þoldi hann ekki, og svo var honum loks sagt upP
Það versta var ekki, að hann varð atvinnulaus. Hitt var verja>
að nú drakk hann margfalt meira en áður. Nú dugðu °
kvöldin. Það var byrjað strax á morgnana. Svona fór
að því að koma þeim úr sæmilegri íbúð í eina kjallarakomp